

Sveinn Óskar Sigurðsson, oddviti Miðflokksins í Mosfellsbæ, sakaði Ástráð Haraldsson um að hafa veitt sér kinnhest þegar hann var í skóla. Það væri svo alvarlegt mál að hann væri óhæfur til að gegna dómaraembætti. Nú gerir Sveinn Óskar hins vegar lítið úr myndbandi Miðflokksins sem sýnir ofbeldi gegn pólitískum andstæðingi.
Fjölmiðlar greindu frá leiknu myndbandi Miðflokksins í Mosfellsbæ í dag þar sem sjá megi Miðflokksmann kýla pólitískan andstæðing, „libba“ eins og hann er kallaður í myndbandinu sem var harkalega gagnrýnt af oddvitum Framsóknarflokks, Samfylkingar og Viðreisnar.
Myndbandið var skömmu seinna tekið niður en engu að síður varði Sveinn Óskar það í viðtali við Vísi. Sagði hann um sprell að ræða og kallaði þá sem ekki þyldu það „snjókorn.“ En það er orðræða sem stuðningsmenn Donald Trump Bandaríkjaforseta hafa gjarnan notað í umræðu á samfélagsmiðlum.
„Þeir eru bara að sprella strákarnir og hafa gaman af lífinu,“ er haft eftir Sveini Óskari.
Árið 2020 sakaði Sveinn Óskar, þá bæjarfulltrúi Miðflokksins í Mosfellsbæ, Ástráð Haraldsson um að hafa veitt sér kinnhest þegar hinn síðarnefndi var kennari hans í Grunnskólanum á Hellu.
Ástráður var á þessum tíma að sækja um embætti Landsréttardómara. Sveinn Óskar taldi Ástráð ekki hæfan til að gegna stöðu héraðsdómara og að hann ætti ekki að fá embættið.
„Það er víða pottur brotinn hvað réttindi barna varðar og ofbeldi gagnvart þeim skal ekki liðið,“ sagði Sveinn Óskar í færslu.
Í annarri færslu sagði Sveinn Óskar að hann hafi viljað taka á gæðamálum og tryggja að börn fái bestu menntun og mesta öryggið. Nefndi hann háa sjálfsvígstíðni ungra drengja í þessu samhengi.