fbpx
Mánudagur 04.maí 2026
Pressan

Drukkinn maður pantaði sér skyndibita, sofnaði og var svo sakaður um kynferðisbrot – Konan svarar nú til saka

Pressan
Mánudaginn 4. maí 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á meðan Íslendingar fögnuðu verkalýðsdeginum þann 1. maí svaraði hin bandaríska Olivia Henderson til saka fyrir dómi í New York. Henni er gert að sök að hafa stundað ólögmæta vöktun og að hafa dreift myndefni sem hún aflaði sér með brotinu. Verði hún fundin sek gæti hún átt í vændum allt að átta ára fangelsi.

Málið hefur vakið gífurlega athygli en fyrir sjö mánuðum horfðu tæplega 30 milljónir á myndband sem Olivia deildi af TikTok þar sem hún sakaði karlmann um kynferðislega áreitni. Maðurinn var kallaður nauðgari, ræfill og ofbeldismaður. Netverjar hótuðu að hafa uppi á manninum og láta hann gjalda fyrir glæpi sína. En hvaða maður var þetta og hvað vann hann sér til saka?

Maðurinn, sem ekki hefur verið nafngreindur í umfjöllun fjölmiðla um málið, ákvað að panta sér skyndibita þann 12. október á síðasta ári. Hann valdi vinsæla skyndibitastaðinn Wendy’s og pantaði heimsendingu með fyrirtækinu DoorDash. Óskaði hann eftir því að pöntun hans yrði skilin eftir fyrir utan útidyrnar. Maðurinn var búinn að fá sér í glas og var undir áhrifum. Á meðan hann beið eftir matnum lagðist hann í sófann og sofnaði. Þetta var óheppilegt þar sem hann sofnaði með buxurnar á hælunum, en hann hafði svo sem ekki áhyggjur af því enda var hann heima hjá sér.

Olivia starfaði fyrir DoorDash og fékk skýr fyrirmæli um hvað hún ætti að gera þegar hún kæmi með sendinguna. Matinn átti hún að skilja eftir við dyrnar. Hún átti ekki að banka og ekki að eiga í samskiptum við viðskiptavininn. Þessu fór Olivia ekki eftir. Þess í stað tók hún upp símann og tók upp myndband af manninum þar sem hann svaf í sófanum heima hjá sér með buxurnar niðri um sig. Sendillinn hélt því fram að dyrnar hefðu verið galopnar þegar hana bar að garði en upptaka úr eftirlitsmyndavél mannsins sýnir að það var ekki svo. Olivia ýtti við hurðinni sjálf.

Myndbandið merkti sendillinn með myllumerkjunum #metoo og #verndumkonur. Síðan fór hún á næstu lögreglustöð og kærði sofandi manninn fyrir kynferðislega áreitni. Hún birti svo fleiri myndbönd þar sem hún sakaði TikTok, DoorDash og lögregluna um þöggun. Það ætti að þagga niður í henni fyrir að hafa greint frá áreitninni.

Netverjum tókst að bera kennsl á manninn. Hann var kallaður nauðgari og fékk fjölda skilaboða þar sem hann var kallaður ræfill og honum var hótað. Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að maðurinn hafði ekkert gert af sér. Hann fór á fyllerí, kom heim til sín, pantaði sér mat og varð það svo á að sofna með buxurnar á hælunum. Hann var meðvitundarlaus þegar Oliviu bar að garði og hafði ekki hugmynd um að hún hefði séð til hans. Olivia var handtekin í nóvember og ákærð í kjölfarið. Hún er sökuð um að hafa niðurlægt manninn með því að taka af honum myndband þar sem hann var berskjaldaður og meðvitundarlaus á sínu eigin heimili sem nýtur friðhelgi.

Olivia hefur ekki birt fleiri myndbönd síðan hún var ákærð en DoorDash hefur fordæmt hegðun hennar, enda fari það gegn stefnu fyrirtækisins að mynda og myndbirta viðskiptavini.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þýskur öfgahægriflokkur býður upp á ókeypis rússneskukennslu og brottflutning innflytjenda

Þýskur öfgahægriflokkur býður upp á ókeypis rússneskukennslu og brottflutning innflytjenda
Pressan
Í gær

Mikil áfengisneysla, með löngu millibili, getur haft áhrif á lifrina

Mikil áfengisneysla, með löngu millibili, getur haft áhrif á lifrina
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hún blekkti alla með englaandlitinu – Óhugnaður á óhugnað ofan

Hún blekkti alla með englaandlitinu – Óhugnaður á óhugnað ofan
Pressan
Fyrir 2 dögum

Á að taka D-vítamín á morgnana eða kvöldin?

Á að taka D-vítamín á morgnana eða kvöldin?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dularfullur líkfundur á Kanaríeyjum

Dularfullur líkfundur á Kanaríeyjum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kynntist stúlkunni þegar hún var 11 ára gömul – Eftir morðið keypti hann keðjusagir, uppblásna sundlaug og líkpoka

Kynntist stúlkunni þegar hún var 11 ára gömul – Eftir morðið keypti hann keðjusagir, uppblásna sundlaug og líkpoka