fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Pressan

Mætti með mat til kærustunnar – Galt fyrir með lífi sínu

Pressan
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 06:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ung kona, 27 ára að aldri, hefur viðurkennt að hafa stungið kærasta sinn til bana. Ástæðan var sú að hann kom heim til hennar með mat sem þurfti að elda í stað þess að fara með hana á barinn, eins og kemur fram í ákæru.

Atvikið átti sér stað í Wisconsin í Bandaríkjunum. Mikayla Kloth, 27 ára, sagði rannsóknarlögreglumönnum að hún hefði stungið Lukas Rosch, 25 ára, í brjóstið á föstudagskvöldið vegna þess að hún hafði viljað fara út að borða, en hann kom í staðinn heim með „kjúklingaleggi, krydd og ætlaði að nota airfryerinn“, samkvæmt ákærunni.

Hún sagði lögreglunni að Rosch hefði „byrjað að stuða hana“, sem leiddi til rifrildis þeirra á milli  sem endaði með því að hún stakk hann. Kloth er sögð hafa játað að hafa stungið Rosch á meðan viðbragðsaðilar framkvæmdu endurlífgun og sagði hún að „ef þau þyrftu að loka hana inni, þá væri það í lagi.“

Mikayla Kloth

Þegar ekið var með hana á lögreglustöðina heyrðist hún segja að „hún hefði bara átt að fara á barinn og allt saman væri þetta pirrandi.“

„Þegar verið var að flytja hana á lögreglustöð sagði ákærða að ef foreldrar Rosch hefðu ekki hatað hana áður, þá myndu þeir hata hana núna,“ sagði í ákærunni.

Rosch var fluttur á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn eftir eitt stungusár í brjóstið. Kloth er ákærð fyrir manndráp af ásetningi fyrsta stigs.

Parið hafði verið saman í um þrjú ár og Rosch heimsótti oft íbúð hennar. Þegar hann sendi henni sms um að koma og elda kvöldmat sagði hún að hún vildi frekar fara út á bar.

Kloth er í haldi gegn tveggja milljóna dollara tryggingu í reiðufé og gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi ef hún verður dæmd sek. Hún mætti ​​fyrst fyrir dómstólinn á mánudag þar sem faðir Rosch, Michael Rosch, sagði fyrir dómi að hann væri eyðilagður eftir andlát sonar síns.

„Vinsamlegast leyfið þessu skrími aldrei að ganga um göturnar aftur,“ sagði hann, samkvæmt myndskeiðum úr réttarsalnum.

Lukas Rosch

„Við erum algjörlega niðurbrotin yfir hörmulegu og tilgangslausu fráfalli sonar okkar, Lukas John Rosch, kærleiksríkasta, gjafmildasta og góðhjartaðasta einstakling sem nokkur gæti kynnst,“ sagði fjölskylda Rosch í yfirlýsingu. „Við biðjum bara um friðhelgi einkalífs á þessum tímapunkti á meðan við reynum að vinna úr málinu.“

Aðeins viku fyrir atvikið  sagði Rosch annarri konu og leigusala íbúðarinnar að Kloth hefði bitið hann í þumalinn, samkvæmt kærunni. Leigusalinn sagði að Rosch virtist hræddur við Kloth.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Sætuefni í matnum geta hugsanlega haft áhrif á afkvæmin

Sætuefni í matnum geta hugsanlega haft áhrif á afkvæmin
Pressan
Í gær

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Blóðugur uppruni 1. maí

Blóðugur uppruni 1. maí
Pressan
Fyrir 2 dögum

Strokufanginn og fangavörðurinn – var þetta rómantískur harmleikur eða útsmogin launráð?

Strokufanginn og fangavörðurinn – var þetta rómantískur harmleikur eða útsmogin launráð?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 4 dögum

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998
Pressan
Fyrir 4 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag