fbpx
Laugardagur 16.maí 2026
433Sport

Howe þurfti að svara erfiðum spurningum eigenda en verður áfram

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 4. maí 2026 07:59

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er útlit fyrir að Eddie Howe stýri Newcastle áfram á næstu leiktíð eftir fund með eigendum félagsins á dögunum.

Stjórnendur og Howe eru sammála um næstu skref eftir erfiða leiktíð, þar sem liðið hefur tapað 16 leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Ítarleg greining verður gerð á stöðu liðsins í sumar og verður lögð áhersla á betri ákvarðanatökur á leikmannamarkaðnum, í von um að næsta tímabil verði betra.

Howe viðurkennir að hafa fengið erfiðar spurningar á fundinum, en nýtur áfram trausts. Hann hefur undanfarin ár skilað frábærum árangri, til að mynda með því að vinna deildabikarinn og tryggja sæti í Meistaradeildinni í tvígang.

Á fundinum voru til að mynda rædd áhrif þess að selja stjörnuleikmanninn Alexander Isak til Liverpool á síðustu leiktíð. Þá missti félagið af öðrum skotmörkum á sama tíma.

„Þegar þú vinnur ekki leiki byggist upp pressa. Ég vil ekki valda neinum vonbrigðum, hvorki stuðningsmönnum, leikmönnum né eigendum,“ sagði Howe til að mynda um málið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Barcelona vill setjast niður við samningaborðið

Barcelona vill setjast niður við samningaborðið
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal

Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Hefur aldrei dottið í hug að segja upp störfum á Anfield

Hefur aldrei dottið í hug að segja upp störfum á Anfield
433Sport
Í gær

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar
433Sport
Í gær

Kynþokkafyllsta kona Bretlands gerir allt vitlaust með léttklæddum myndum

Kynþokkafyllsta kona Bretlands gerir allt vitlaust með léttklæddum myndum