fbpx
Laugardagur 16.maí 2026
433Sport

Hermann hefur rætt við Ástbjörn í kjölfar ásakanna um að hafa kýlt hann – Segir málið hafa verið hressilega blásið upp

Helgi Fannar Sigurðsson
Sunnudaginn 3. maí 2026 22:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikið hefur verið fjallað um hita og átök sem brutust út eftir leik Vals og KR í Bestu deild karla í gærkvöldi.

Fótbolti.net fjallaði um það laust fyrir hádegi í dag að átök hafi brotist út í leikmannagöngunum eftir 1-4 sigur KR og að Hermann Hreiðarsson, þjálfara Vals, sé gefið að sök að hafa kýlt í þindina á Ástbirni Þórðarsyni, leikmanni KR-inga.

Hermann hafði kvartað undan Ástbirni í viðtölum eftir leik og sagt að hann hafi komist upp með of mikið.

Í viðtali í Innkastinu á Fótbolta.net, sem nú er í loftinu á X-inu, er hins vegar rætt við Hemma og þar segir hann að búið sé að blása atburðarásina hressilega upp í fjölmiðlum.

Enn fremur segir hann að hann hafi rætt við Ástbjörn og málinu sé nú lokið af hálfu hans og KR-inga. Hermann segir leiðinlegt að athyglin beinist að þessum hlutum eftir frábæran fótboltaleik.

Eftir að viðtalið var spilað tók Elvar Geir Magnússon, ritstjóri Fótbolta.net, þó fram að hann stæði við innihald fréttarinnar sem birtist í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Barcelona vill setjast niður við samningaborðið

Barcelona vill setjast niður við samningaborðið
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal

Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Hefur aldrei dottið í hug að segja upp störfum á Anfield

Hefur aldrei dottið í hug að segja upp störfum á Anfield
433Sport
Í gær

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar
433Sport
Í gær

Kynþokkafyllsta kona Bretlands gerir allt vitlaust með léttklæddum myndum

Kynþokkafyllsta kona Bretlands gerir allt vitlaust með léttklæddum myndum