fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Pressan

Vísindamenn segja að dómsdagur verði þennan dag – Ekki langt undan

Pressan
Laugardaginn 18. apríl 2026 20:20

Vísindamenn reiknuðu út hvenær heimsendir verður. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mannkynið hefur alltaf verið heillað af tilhugsuninni um dómsdag, endalok veraldar. Stríð, sjúkdómar og loftslagsvandamál hafa hvað eftir annað ýtt undir ótta fólks við að dómsdagur renni fljótlega upp.

Fyrir rúmlega 60 árum taldi hópur vísindamanna sig geta reiknað nákvæmlega út hvenær þessi dagur myndi renna upp. Miðað við reiknilíkan þeirra, þá var lítill tími til stefnu og dómsdagur átti sinn stað í dagatalinu.

LADbible segir að það hafi verið 1960 sem vísindamennirnir Heinz von Foerster, Patricia M. Mora og Lawrence W. Amiot gáfu út greiningu varðandi endalok heimsins. Þetta var gert í nafni University of Illinois.

Þau höfðu skoðað mannfjöldatölur jarðarinnar síðustu 2.000 ár og sáu mynstur sem vakti miklar áhyggjur hjá þeim. Fólki fjölgaði ekki bara, því fjölgaði sífellt hraðar.

Dagsetning sem vakti hroll hjá mörgum

Allt þetta notuðu þau til að reikna út hvenær dómsdagur rynni upp vegna þess að þá myndi mannfjöldinn ná þeim punkti að fólki gæti ekki fjölgað meira.

Miðað við reiknilíkan þeirra þá verður það föstudaginn 13. nóvember 2026 sem kerfið hrynur.

Vísindamennirnir töldu að tækniframfarir myndu að vísu halda hungri og hruni samfélagsins í skefjum kynslóðum saman en að við værum komin nærri mörkum þess mögulega á þessu sviði. Þau skrifuðu að mannkynið myndi ekki svelta í hel, heldur myndi vöxtur þess gera út af við það.

Á þessum tíma virtist þessi hræðsla ekki úr lausu lofti gripin. Jarðarbúum hafði fjölgað mikið á aðeins 60 árum. Árið 1900 voru þeir 1,6 milljarðar en 1960 voru þeir orðnir 3 milljarðar.

Nú eigum við ekki svo langt eftir í þennan dómsdag og virðumst bara hafa það þokkalegt. Jarðarbúar eru orðnir 8,2 milljarðar en það hefur hægt mjög á fólksfjölguninni. Samkvæmt útreikningum Sameinuðu þjóðanna, þá mun mannfjöldinn ná hámarki í kringum 2080 þegar við verðum 10,3 milljarðar. Eftir það fer fólki að fækka.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Í gær

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Eignaðist sex börn með draumaprinsinum sem hún kynntist í biblíuhópnum – Síðan hrundi spilaborgin með látum

Eignaðist sex börn með draumaprinsinum sem hún kynntist í biblíuhópnum – Síðan hrundi spilaborgin með látum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Öldruð móðir veit ekki að sonur hennar er dáinn því hún spjallar reglulega við gervigreindartvífara hans

Öldruð móðir veit ekki að sonur hennar er dáinn því hún spjallar reglulega við gervigreindartvífara hans
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar