fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

Þetta er líklega elsta górilla heims

Pressan
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 19:30

Fatou gerði vel við sig á afmælisdaginn í gær. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Górillan Fatou, sem talin er elsti górilla heims í haldi manna, fagnaði 69 ára afmæli sínu í dýragarðinum í Berlín í gær með sérstakri afmælisveislu.

Af því tilefni fékk Fatou veglegt grænmetisborð sem innihélt meðal annars kirsuberjatómata, rauðrófur, blaðlauk og salat, sem hún gæddi sér á í rólegheitum í sínu eigin gerði.

Fatou kom til Vestur-Berlínar árið 1959 en talið er að hún hafi þá verið um tveggja ára gömul. Nákvæm fæðingardagsetning hennar er ekki þekkt, en dýragarðurinn hefur þó ákveðið að 13. apríl sé opinber afmælisdagur hennar.

Górillur lifa að jafnaði í 35 til 40 ár í náttúrunni, en geta náð mun hærri aldri í haldi manna. Aldur Fatou þykir því einstakur og er hún að líkindum elsta górilla heims.

Samkvæmt heimsmetabók Guinnes fæddist Fatou í Vestur-Afríku árið 1957. Saga hennar er um margt merkileg því heimildir herma að franskur sjómaður hafi flutt hana frá Afríku og síðar notað hana sem greiðslu fyrir skuld á bar í Marseille í Frakklandi. Franskur dýrasali hafi síðan keypt hana og selt áfram til dýragarðsins í Berlín.

Á efri árum hefur Fatou kosið að halda sig til hlés frá öðrum górillum garðsins og býr hún nú ein í sérstöku gerði. Hún hefur misst tennurnar og glímir við væga liðagigt auk heyrnarskerðingar.

Þrátt fyrir það segir Christian Aust, yfirmaður í Berlínardýragarðinum, að hún sé enn mjög vingjarnleg og eigi góð samskipti við starfsfólk dýragarðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið