fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

Nýburi fannst í plastpoka árið 1981 – Áratugum síðar kom sannleikurinn í ljós

Pressan
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 21:30

Gröf stúlkunnar sem lést nýfædd árið 1981.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

65 ára kona í Arizona hefur verið ákærð fyrir morð á nýfæddu barni sínu, tæpum 45 árum eftir að það fannst látið á háskólasvæði í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum. DNA-rannsóknir leiddu rannsakendur loks á spor móðurinnar.

Konan, Nancy Jean Trottier, var handtekin þann 7. apríl síðastliðinn vegna dauða nýburans, stúlkubarns sem virðist hafa dáið rétt eftir fæðingu. Stúlkan fannst árið 1981 á svæði Valley City State College, um 160 kílómetra frá Bismarck í Norður-Dakóta.

Samkvæmt gögnum málsins fannst nýburinn í plastpoka með naflastrenginn enn fastan við líkamann. Krufning leiddi síðar í ljós að barnið hafði verið á lífi við fæðingu og að dánarorsök hefði líklega verið köfnun.

Trottier var nemi við skólann á árunum 1978 til 1982 og er nú sökuð um að hafa kæft barnið skömmu eftir fæðingu.

Málið var óleyst í áratugi og hafði lengi verið eitt þekktasta óupplýsta sakamál svæðisins. Það var ekki fyrr en framfarir í DNA-tækni opnuðu nýja möguleika að rannsóknin tók nýja stefnu.

Lík barnsins var grafið upp í júlí 2019 og úr líkamsleifunum tókst að vinna erfðaefni sem skilaði nothæfu DNA-sniði árið 2020. Eftir að farið var í þá vinnu tókst að þrengja hringinn um mögulega ættingja barnsins.

Þegar lögregla ræddi við Trottier árið 2021 á hún að hafa sagt: „Kannski var það ég“ um það hvort hún hefði fætt barn á þessum tíma. Hún samþykkti í kjölfarið að láta í té DNA-sýni.

Eiginmaður hennar gaf einnig sýni síðar sama ár og leiddi rannsóknin í ljós að yfirgnæfandi líkur væru á því að nýburinn væri líffræðilegt barn Trottier og eiginmanns hennar. Engar upplýsingar hafa komið fram um að hann sæti ákæru eða hafi verið tengdur verknaðinum á sínum tíma.

Trottier kom fyrst fyrir dóm í Barnes-sýslu á mánudag og hefur verið ákærð fyrir morð af fyrstu gráðu samkvæmt lögum Norður-Dakóta. Verði hún fundin sek gæti hún átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn.

Í fréttum bandarískra fjölmiðla kemur fram að ákæran hafi vakið sterk viðbrögð í Valley City, þar sem málið hefur legið eins og skuggi yfir samfélaginu í áratugi. Eftir að ákæran var kynnt heimsóttu íbúar leiði barnsins, sem margir hafa lengi þekkt sem Baby Rebecca.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið