fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Pressan

Banvænn misskilningur kom upp um hið sanna eðli lögreglumannsins

Pressan
Laugardaginn 18. apríl 2026 21:30

Samuel Parker var ekki allur þar sem hann var séður.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samuel Parker hafði öll spil á hendi til að fremja hið fullkomna morð sem yrði aldrei upplýst. Hann var þaulvanur rannsóknarlögreglumaður og starfaði hjá morðdeild lögreglunnar í Lafayette í Georgíu í Bandaríkjunum. Hann þekkti allar vinnuaðferðir lögreglunnar, í tengslum við rannsókn morðmála, út og inn og hann var sérfræðingur í yfirheyrslum yfir meintum gerendum.

Hann var talinn duglegur og nákvæmur hvað varðaði rannsóknir morðmála og vinnufélagar hans kunnu vel við hann og töldu hann framúrskarandi lögreglumann. Þeir kölluðu hann stundum Mr. Perfect (Hr. Fullkominn) og engum datt í hug að hann gæti gerst sekur um svo skelfilegan verknað sem morð.

Samuel ólst upp á sveitabæ nærri Chattachoochee þjóðgarðinum, ekki fjarri Lafayette, og að eigin sögn þekkti hann þjóðgarðinn eins og lófana á sér. Hann sagði vinnufélögum sínum oft að ef morðingi, sem væri staðkunnugur, ætlaði að fela lík í þjóðgarðinum, væri vonlaust fyrir lögregluna að finna það.

Það má því segja að allar forsendur hafi verið fyrir hendi svo þessi miðaldra lögreglumaður gæti framið hið fullkomna morð.

En stærsta vandamálið sem hann glímdi við, var að hann taldi sig ósnertanlegan. Hann hafði enga trú á að vinnufélgar hans væru nógu snjallir til að geta komið upp um hann.

Einræðisherra heima við

1993 kynntist Samuel konunni sem varð þriðja eiginkona hans. Hún hét Therese. Hún starfaði við neyðarsímsvörun hjá lögreglunni í Layfette. Þau hittust í samkvæmi á lögreglustöðinni og gengu í hjónaband ári síðar.

Flestir töldu hjónaband þeirra vera hamingjusamt og traust og einkennast af gagnkvæmri virðingu og ást. En þessi glansmynd var víðsfjarri því að vera rétt.

Eins og áður sagði, þá var Samuel mjög fær rannsóknarlögreglumaður en heima við, þá var hann stjórnsamur og léði ekki máls á að einhver annar fengi einhverju ráðið á heimilinu.

Theresa Parker átti ekki sjö dagana sæla í hjónabandinu.

 

 

 

 

 

 

 

Theresa sagði vinkonum sínum að hún væri eins og „vélmenni“ því henni fannst Samuel fjarstýra henni allan sólarhringinn allt árið.

Eftir 10 ára hjónaband sagði grátandi Theresa yngri systur sinni, Christina Hall, að hún réði engu í hjónabandinu. „Í þessi 10 ár hef ég ekki svo mikið sem einu sinni fengið að ráða einhverju, ekki einu sinni hvað væri í matinn eða hvað við myndum horfa á í sjónvarpið. Ef ég var að horfa á uppáhaldsþáttaröðina mína í sjónvarpinu og hann kom heim, þá var það fyrsta sem hann gerði að taka fjarstýringuna af mér og stilla á íþróttarás,“ sagði hún systur sinni.

„Á hverjum mánudagsmorgni fékk ég seðil með lista yfir það sem hann vildi fá í matinn á hverju kvöldi alla vikuna. Hann skipulagði fríin okkar án þess að hafa samráð við mig og hann fór oft á íþróttabar með vinum sínum, án þess að láta mig vita, á meðan ég sat heim og beið hans með heitan mat. Líf mitt er helvíti,“ sagði hún einnig.

Í mars 2007 hafði hún fengið nóg eftir margra ára niðurlægingu í hjónabandinu. Hún hafði margoft beðið Samuel um að bæta sig en það hafði ekki haft nein áhrif á hann.

Í eitt skipti ógnaði hann henni með lögregluskammbyssunni sinni og sagði að ef hún myndi fara frá honum myndi hann gera gat á nasirnar hennar með kúlum úr byssunni. Inntak þessara ummæla var einfaldlega það að ef hún yfirgæfi hann, þá myndi hann drepa hana.

Vildi skilnað

Theresa fékk endanlega nóg í byrjun mars 2007 þegar Samuel kom heim úr vinnunni og hélt því fram að hún hefði haldið fram hjá honum með Shane Green, yfirmanni hans í morðdeildinni.

Hún pakkaði helstu nauðsynjum sínum niður í tösku og ók heim til systur sinnar og sótti síðan um skilnað frá Samuel.

Hún féllst síðan á að flytja aftur til Samuel og búa hjá honum fram til 1. apríl en þá gat hún fengið íbúð í sömu blokk og systir hennar bjó í.

Lögregluskammbyssa Samuel sem hann skaut úr í bílnum.

 

 

 

 

 

 

Ástæðan fyrir þessari undarlegu sambúð var að Samuel sagðist vilja láta líta út fyrir að þau væru að skilja í vinsemd og væru enn góðir vinir. En í raun var hann með allt annað og óhugnanlegt ráðabrugg á prjónunum. Hann var afbrýðisamur og var viss um að Theresa hefði haldið framhjá honum.

Föstudaginn 26. mars hringdi Theresa í systur sína og sagðist verða að heiman um helgina. Hún hefði þörf fyrir að vera ein svo hún gæti hugsað málin í ró og næði.

Hún ók síðan nokkur hundruð kílómetra leið til Gatlinburg í nágrannaríkinu Tennessee og fékk sér herbergi á mótelinu Honey Bee Hide Away.

Hún hafði oft gist þar með Samuel og hún sagði honum að hún ætlaði að vera þar um helgina.

Hann var sannfærður um að hún væri í helgarferð með elskhuga sínum og hringdi í mótelið úr vinnusíma sínum. Hann kynnti sig sem lögreglumann og spurði hvort „frú Parker væri búin að skrá sig inn fyrir helgina“.

Starfsmanninum í móttökunni heyrðist hann segja Barker en ekki Parker og svaraði „herra og frú Barker eru á hótelinu“.  Það var rétt en starfsmaðurinn sagði ekki neitt um að Theresa Parker væri þar einnig og að hún væri alein.

Banvænn misskilningur

Allt bendir til að þetta hafi verið dropinn sem fyllti mælinn hjá Samuel.

Þegar Theresa kom heim eftir helgardvölina tók Samuel enn einu sinni upp hið meinta framhjáhald hennar. Hún fékk nóg og ákvað samstundis að flytja út. Nú fannst henni nóg komið.

Síðdegis þann 21. mars kom hún í Toyota bifreið sinni að heimili sínu og Samuel. Nágrannar sáu hana leggja bílnum í bílskúrnum og skömmu síðar kom Samuel heim í lögreglubíl og lagði honum í innkeyrslunni. Næsta morgun átti Theresa að mæta í vinnu klukkan 6 en gerði ekki. Hún hafði ekki tilkynnt forföll og var þetta mjög ólíkt henni.

Vinkona hennar og starfssystir, Rhonda Knox, reyndi árangurslaust að ná sambandi við hana símleiðis. Hún lét siðan yfirmann sinn, Shane Green, vita af þessu.

Hann ók heim til Theresa og Samuel og sá þá strax að lögreglubíll Samuel var við húsið en enginn kom til dyra.

Hann hringdi í Rhonda Knox sem hvatti hann til að kanna hvort bíll Theresa væri í bílskúrnum. Það var hann ekki og Green náði engu sambandi við hana né undirmann sinn, Samuel.

Hann ók aftur á lögreglustöðina og þar ræddi fólk mikið um hversu undarlegt það væri að ekki væri hægt að ná sambandi við Theresa og Samuel en allir vissu að þau voru að skilja.

En eiginlegri leit var ekki hrundið af stað fyrr en föstudaginn 23. mars þegar Christina Hall bað lögregluna formlega um að leita að systur sinni.

Christina Hall.

 

 

 

 

 

 

Þegar þarna var komið við sögu var Samuel kominn fram og það sama átti við um bíl Theresa. Hann var í bílskúrnum og Samuel sagði hann hafa verið þar allan tímann.

En það var eitthvað mikið að skýringum hans. Hann sagði vinnufélögum sínum að hann hefði verið á ferðinni í lögreglubílnum aðfaranótt 22. mars og hefði ekki komið heim fyrr en snemma um morguninn. En nágrannar sögðu að bíllinn hefði staðið í innkeyrslunni alla nóttina.

Hann sagðist einnig hafa verið í veiðiferð allan fimmtudaginn með vinnufélaga sínum og að hann hefði ekki hugmynd um hvað hefði orðið af Theresa.

Hann gat ekki gefið neina skýringu á af hverju hann hafði ekki heyrt þegar yfirmaður hans, Shane Green, hringdi dyrabjöllunni heima hjá honum snemma að morgni fimmtudagsins.

Grunaður um morð

Málið var dularfullt en kastljósið beindist nú að Samuel þrátt fyrir að vinnufélagar hans ættu erfitt með að trú að hann væri viðriðinn hvarf Theresa.

Eftir nokkra daga var stöðu málsins breytt úr leit að Theresa í morðrannsókn. Lögreglan vann nú út frá mjög skýrri kenningu. Hún taldi að Samuel hefði myrt Theresa aðfaranótt 22. mars og hefði síðan í skjóli myrkurs farið með lík hennar í þjóðgarðinn, sem hann þekkti eins og lófana á sér, og falið það þar.

Sérfræðingar rannsökuðu bíl Theresa og komust að því að skottið hafði nýlega verið þrifið en samt sem áður fundu þeir blóðbletti í því. DNA-rannsókn sýndi að blóðið var úr Theresa og Samuel. Ekki var hægt að slá því föstu hversu gamalt það var.

Þetta var enn ein vísinbendingin um að Samuel vissi hugsanlega meira um hvarf eiginkonu sinnar en hann vildi vera láta.

En svo undarlega sem það nú kann að virðast, þá var Samuel með fjarvistarsönnun á þeim tíma sem lögreglan taldi að Theresa hefði verið myrt. Hann sagðist hafa eignast ástkonu eftir að Theresa fór fram á skilnað. Hún hét Christy Bellflower og hún staðfesti að hann hefði verið hjá henni á milli klukkan 00.30 og 01.30 aðfaranótt 22. mars. Hún sagði að þau hefðu drukkið vodka og stundað kynlíf áður en hann ók á brott í lögreglubílnum.

Þetta gat ekki verið rétt því nágrannar höfðu séð lögreglubílinn í innkeyrslunni alla nóttina og staðsetningarbúnaðurinn í lögreglubílnum staðfesti að hann hefði verið við heimili Samuel alla nóttina.

Lögreglubíll Samuel.

 

 

 

 

 

 

Christy dró framburð sinn til baka þegar henni var kynnt að hún kynni að verða ákærð fyrir falskan vitnisburð.

Lögreglan yfirheyrði fjölda fólks vegna málsins en lík Theresa fannst ekki. Gott orðspor Samuel gerði heldur ekki að verkum að hann gæti talist líklegur morðingi en samt sem áður var margt sem studdi þá kenningu lögreglunnar.

Lífshættulegur

Þegar lögreglan yfirheyrði Keila Beaird, sem var eiginkona hans númer tvö, sagði hún að hjónabandið hefði verið sannkallað helvíti fyrir hana. Samuel hafði hótað henni lífláti næstum daglega og var nánast alltaf drukkinn.

Eitt sinn neyddi hann hana til að ganga berfætta yfir glerbrot og hlekkjaði hana síðan við rúmið með handjárnunum sínum.

Keila Beaird

 

 

 

 

 

 

Eftir samkvæmi, sem þau fóru saman í, hafði hann skotið úr byssu sinni í bílnum þeirra, og heila nótt hafði hún legið í rúminu með byssuhlaup við ennið og Samuel sofandi við hliðina með fingur á gikknum.

Glansmyndin af hinum góða lögreglumanni var nú farinn að láta sjá mikið á og í staðinn var að teiknast upp mynd af lífshættulegum manni.

Handtekinn

Ári eftir hvarf Theresa var Samuel handtekinn og ákærður fyrir morð.

Málið var tekið fyrir dóm í ágúst 2009 og þóttu réttarhöldin undarleg.

Hvert vitnið á fætur öðru skýrði frá hversu mikill hrotti og ofbeldismaður Samuel væri og einn vinnufélaga hans, Ben Chaffin, sagði svolítið sem kom sér mjög illa fyrir Samuel. Hann sagði að föstudaginn 23. mars 2007 hefði Samuel sagt honum að hann hefði skotið Theresa í höfuðið og síðan grafið lík hennar í þjóðgarðinum og að það myndi aldrei finnast.

Samuel Parker eftir handtökuna.

 

 

 

 

 

 

Kviðdómnum fannst þessi framburður Chaffins þó mjög undarlegur og ákvað að hann væri ekki marktækur.  En á hinn bóginn var svo margt annað sem benti til að Samuel hefði myrt Theresa en þó án þess að beinar sannanir væru fyrir hendi.

Eftir þriggja vikna réttarhöld dró kviðdómurinn sig í hlé til að komast að niðurstöðu. En kviðdómendurnir voru ósammála, tveir töldu Samuel hafa myrt Theresa en tíu vildu sýkna hann.

Dómarinn sendi kviðdóminn því aftur afsíðis og gaf fyrirmæli um að hann yrði að komast að samhljóða niðurstöðu, á hvorn veginn sem væri. Það tókst og nú voru allir kviðdómendurnir sammála um að Samuel hafði myrt Theresa.

Hann var dæmdur í ævilangt fangelsi án möguleika á að fá reynslulausn eða náðun.

Líkið fannst þremur árum síðar

Áður en dómurinn var kveðinn upp tók Christina Hall til máls og biðlaði til Samuel um að segja hvar hann faldi líkið svo Theresa gæti fengið verðuga útför og verið jarðsett í vígðri mold.

Samuel sagðist ekki geta sagt hvar líkið væri því hann hefði ekki myrt Theresa.

Sumarið 2010 fundu tveir göngumenn lík Theresa nærri á í Chattahoochee þjóðgarðinum.

Samuel reyndi að nýta alla leiðir til að fá dómnum hnekkt eða breytt en það tókst ekki og að lokum hafði hann fullreynt allt. Hann mun því bera beinin í fangelsi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Í gær

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Eignaðist sex börn með draumaprinsinum sem hún kynntist í biblíuhópnum – Síðan hrundi spilaborgin með látum

Eignaðist sex börn með draumaprinsinum sem hún kynntist í biblíuhópnum – Síðan hrundi spilaborgin með látum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Öldruð móðir veit ekki að sonur hennar er dáinn því hún spjallar reglulega við gervigreindartvífara hans

Öldruð móðir veit ekki að sonur hennar er dáinn því hún spjallar reglulega við gervigreindartvífara hans
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar