Fólkið heitir Christine Grayson, 59 ára amma frá York, og Darren Reynolds, sextugur afi frá Sheffield. Þau töldu að 5G farsímamöstur væru hönnuð til að vera notuð sem vopn gagnvart fólki sem hefði látið bólusetja sig gegn kórónuveirunni sem veldur COVID-19.
Grayson hafði keypt tvo lásboga og Reynolds reyndi að virkja árásarriffla, sem höfðu verið gerðir óvirkir, þegar þau voru að undirbúa sig undir það sem þau telja vera yfirvofandi samfélagslegt hrun.
Reynolds var fundinn sekur um að hvatt til hryðjuverka með því að hvetja til árása á þingmenn.
Sky News segir að Grayson hafi verið fundin sek um samsæri um að valda tjóni með því að ráðast á 5G farsímamöstur í maí og júní á síðasta ári.
Hún hafði verið tíður gestur á spjallrásum á Telegram á meðan heimsfaraldurinn herjaði. Þar heyrði hún rök fyrir því að jörðin sé flöt og ýmsar umræður áttu sér stað um bóluefni. Fyrir dómi sagði hún að synir hennar tveir hefðu sagt henni að hætta þessari vitleysu.
Refsing skötuhjúanna verður ákveðin á næstu dögum.