fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
Fréttir

Mikill meirihluti Bandaríkjamanna telur Trump andlega óhæfan til að gegna embætti

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 5. maí 2026 15:30

Það stefnir í slæma útkomu Trump og félaga í kosningunum í nóvember.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meirihluti Bandaríkjamanna telur að Donald Trump hafi ekki andlega getu til þess að sinna starfi Bandaríkjaforseta. Þetta kemur fram í nýrri könnun. Mikill meirihluti telur að hann hugsi ekki um afleiðingar gjörða sinna.

Þetta kemur fram í nýrri könnun Ipsos sem greint er frá í miðlinum The Hill.

Samkvæmt könnuninni telja 59 prósent Bandaríkjamanna að Donald Trump hafi ekki andlega getu til þess að sinna starfi Bandaríkjaforseta. Aðeins 40 prósent telja hann hafa hana.

55 prósent telja að Trump sé ekki í nógu góðu líkamlegu ásigkomulagi til þess að vera forseti, en hann verður áttræður í sumar. 44 prósent telja hann í nógu góðu líkamlegu ásigkomulagi.

Mikill meirihluti, 67 prósent telja að Trump hugsi sig ekki vel um áður en hann tekur mikilvægar ákvarðanir. 54 prósent telja að hann sé ekki sterkur leiðtogi.

Óvinsældirnar aldrei meiri

Þá er meirihluti Bandaríkjamanna óánægður með ákvarðanir Trump og framtíðarhorfur landsins.

Til að mynda telja 50 prósent að bensínverð verði hærra á næsta ári en aðeins 21 prósent telja að það lækki. En hið misheppnaða stríð Trump í Íran hefur valdið því að olíuverð hefur rokið upp á heimsvísu.

61 prósent telja að innrás Bandaríkjanna í Íran hafi aukið hættuna á hryðjuverkum gagnvart Bandaríkjamönnum en aðeins 11 prósent að hættan hafi minnkað.

Könnunin rímar ágætlega við nýlega könnun Ipsos um vinsældir forsetans sem hafa aldrei verið minni. 62 prósent Bandaríkjanna eru óánægð með Trump og aukast óvinsældirnar sífellt. Helstu ástæðurnar eru nefndar efnahagurinn, lífskjaraskerðing og verðbólga.

76 prósent telja að Trump sé ekki að takast á við versnandi lífskjör Bandaríkjamanna og 66 prósent eru óánægð með stríðið í Íran.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lokatölur úr Reykjavík – Sjálfstæðisflokkurinn tvímælalaus sigurvegari borgarstjórnarkosninganna

Lokatölur úr Reykjavík – Sjálfstæðisflokkurinn tvímælalaus sigurvegari borgarstjórnarkosninganna
Fréttir
Í gær

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“

Guðlaugur sigurreifur þó fyrstu tölur liggi ekki fyrir – „Þetta er ekki flókið. Við munum fá góða kosningu“
Fréttir
Í gær

Bæjarstjóri skaut föstum skotum á Kristrúnu eftir að fyrstu tölur bárust – „Það tókst ekki“

Bæjarstjóri skaut föstum skotum á Kristrúnu eftir að fyrstu tölur bárust – „Það tókst ekki“
Fréttir
Í gær

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ

Meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur í Reykjanesbæ