fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Sjálfstæðismenn í Kópavogi brutu kosningalög – Málið komið á borð kjörstjórnar

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 27. apríl 2026 09:34

Bannað er að mynda á kjörstað. Skjáskot/Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi birti myndband þar sem kosningalög eru bersýnilega brotin. Málið er komið á borð kjörstjórnar í Kópavogi en ekki hefur verið tekin ákvörðun um málið.

Sjálfstæðisflokkurinn birti á samfélagsmiðlum nokkurs konar „kennslumyndband“ fyrir þá sem ekki komast á kjörstað þann 16. maí næstkomandi og þurfa því að kjósa utan kjörfundar hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.

Mynduðu kjörseðil og kjörkassa þrátt fyrir bann

Í myndbandinu sem ber yfirskriftina „Nýtum kosningaréttinn“ má sjá Elísabetu Sveinsdóttur, forseta bæjarstjórnar, mæta við húsnæði sýslumanns, lýsa því hvernig þetta er gert og hvetja fólk til þess að nýta kosningaréttinn.

Fer hún inn á skrifstofuna og þá heyrist að starfsmaður bendir henni á að myndatökur séu óleyfilegar. En það stoppar hana ekki.

Er svo meðal annars tekin mynd af kjörseðli merktum Sjálfstæðisflokknum og konunni að setja umslagið í kjörkassann.

Hvað segja lögin?

Myndbandið er brot á kosningalögum eins og starfsmaður bendir konunni í myndbandinu á. Í 69. grein, það er 4. málsgrein segir svo:

„Kjörstjóri skal sjá til þess að á kjörstað og í næsta nágrenni hans fari hvorki fram óleyfilegur kosningaáróður eða kosningaspjöll né önnur starfsemi sem truflar eða hindrar framkvæmd kosninga. [Að fengnum tillögum landskjörstjórnar skal ráðherra setja reglugerð 1) um óleyfilegan kosningaáróður í nágrenni kjörstaða, kosningaspjöll og aðra starfsemi sem truflar eða hindrar framkvæmd kosninga.] 2)“

Engin ákvörðun verið tekin

Málið er nú komið á borð kjörstjórnar í Kópavogi. Það staðfestir Jón Ögmundsson, einn þriggja kjörstjórnarmanna.

„Okkur var bent á þetta. Ég veit að þetta er til skoðunar,“ segir Jón.

Jón segir að engar ákvarðanir hafi verið teknar. Kjörstjórn eigi eftir að taka þetta mál fyrir. Aðspurður um viðurlög segir hann að oftast sé ekki tekið hart á svona málum.

„Oftast eru aðilar beðnir um að fjarlægja svona efni,“ segir Jón.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sá grunsamlegan mann með fisk og tilkynnti til lögreglu – „Ógeð þetta lið er sem stundar þetta“

Sá grunsamlegan mann með fisk og tilkynnti til lögreglu – „Ógeð þetta lið er sem stundar þetta“
Fréttir
Í gær

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“