
Southampton mun að öllum líkindum missa markvörðinn Daniel Peretz eftir njósnahneykslið sem varð til þess að félagið var rekið úr umspili ensku B-deildarinnar.
Peretz kom til félagsins á láni frá Bayern Munchen í janúar og hafði Southampton áhuga á að kaupa hann fyrir um sex milljónir punda. Samkvæmt Bild mun hann hins vegar snúa aftur til Þýskalands í sumar.
Southampton fékk fjögurra stiga frádrátt fyrir næstu leiktíð einnig og var sem fyrr segir rekið úr umspilinu eftir að hafa viðurkennt að hafa njósnað um önnur lið, þar á meðal Middlesbrough fyrir undanúrslitaleik liðanna á dögunum.
Boro mættir einmitt Hull í úrslitaleiknum í stað Dýrlinganna.
Nokkrir leikmenn Southampton eru sagðir íhuga lögsókn vegna málsins, enda gæti þeim orðið af miklum bónusum, og fleiri gætu yfirgefið félagið í sumar.