fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Fréttir

Kolbrún vill að kattaeigendur geri þetta núna

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 20. maí 2026 11:00

Kolbrún er með mikilvæg skilaboð til allra kattaeigenda.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingkona Flokks fólksins, vill að kattaeigendur setji ól með bjöllu á kettina sína núna. Smáfuglarnir eru með litla unga í hreiðrum og bjallan bjargar lífum.

„Fáar dýrategundir ylja manni jafn mikið um hjartarætur og kettir og fuglar. Kettirnir okkar eru dásamlegir fjölskyldumeðlimir, með sterka persónuleika, sjálfstæði og hlýju. Þegar vora tekur iðar allt af lífi og flestar inni- og útikisur fagna því að geta vappað um nágrennið, frjálsar og óháðar á sínum eigin forsendum. En þessu frelsi fylgir ákveðin ábyrgð sem dýrelskandi eigendur þurfum að axla,“ segir Kolbrún í aðsendri grein á Vísi.

Fuglarnir eru mikilvægir

Á þessum tíma eru spörfuglar flögrandi og oft með nýklakta unga í hreiðri. Ungarnir kunna vart sínum fótum forráð þegar þeir skríða úr hreiðrinu.

Fuglarnir eru fólki mikilvægir eins og kettirnir. Fuglasöngur tengir fólk við náttúruna og fuglarnir halda lús og öðrum meindýrum í trjám í skefjum.

„Kettir eru í eðli sínu rándýr. Þegar þeir verða varir við hreyfingu vaknar meðfætt veiðieðli. Það gerir ketti ekki vonda. Þeir eru einfaldlega að hlýða eðli sínu. En afleiðingarnar geta hins vegar verið sárgrætilegar fyrir fuglalífið, sérstaklega þegar ungarnir eru varnarlausir,“ segir Kolbrún.

Hægt er að bæta úr þessu á einfaldan hátt. Það er með því að setja bjöllur á hálsól katta. Hljóðið úr þeim gefi fuglunum betra tækifæri til þess að forða sér þegar kettirnir hafa komið augastað á þá.

Ein ekki nóg

„Til að ná árangri ætti að nota tvær til þrjár bjöllur frekar en eina. Kettir eru nefnilega ótrúlega snjallir og læra fljótt að læðast þannig að ein stök bjalla haldist hljóðlaus. En þegar bjöllurnar eru fleiri, klingja þær saman við minnsta samslátt,“ segir Kolbrún. „Þessi lága, vinalega hringing gerir það að verkum að kötturinn á nánast ómögulegt með að koma bráð sinni í opna skjöldu. Ef við bætum svo litsterku hálsskrauti eða sérstökum kraga við ólina, eykst fælingin enn frekar, því fuglar hafa framúrskarandi sjón og sjá skæra liti úr mikilli fjarlægð.“

Kolbrún segir þetta ekki snúast um boð og bönn heldur samkennd og umhyggju fyrir öllu lífi.

„Við getum haldið áfram að leyfa köttunum okkar að njóta útiverunnar og frelsisins, á sama tíma og við leggjum okkar að mörkum til að fleiri fuglsungar vaxi og dafna og komist á legg. Hjálpumst að við að gera hverfið okkar að öruggum griðastað fyrir þau öll,“ segir hún að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Skúli Tómas mætti ekki við þingfestingu og verjandi hans krefst frávísunar

Skúli Tómas mætti ekki við þingfestingu og verjandi hans krefst frávísunar
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Maður sagður hafa elt nemendur í Lækjarskóla og ógnað þeim með hnífi

Maður sagður hafa elt nemendur í Lækjarskóla og ógnað þeim með hnífi
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Bandaríkjaþing samþykkir útnefningu hins umdeilda sendiherra Billy Long – Grínaðist með innlimun Íslands

Bandaríkjaþing samþykkir útnefningu hins umdeilda sendiherra Billy Long – Grínaðist með innlimun Íslands
Fréttir
Í gær

Misjafnir dómar um kannabis-gistiheimilið í Þverholti: „Það hefði verið betri kostur að sofa í bílnum“

Misjafnir dómar um kannabis-gistiheimilið í Þverholti: „Það hefði verið betri kostur að sofa í bílnum“
Fréttir
Í gær

Vildi fá hærri bætur af því hann var 17 ára

Vildi fá hærri bætur af því hann var 17 ára
Fréttir
Í gær

Lögreglan svarar gagnrýni sjónarvottar vegna alvarlegs atviks í kirkjugarði – „Beiting rafvarnarvopns var besti valkosturinn“

Lögreglan svarar gagnrýni sjónarvottar vegna alvarlegs atviks í kirkjugarði – „Beiting rafvarnarvopns var besti valkosturinn“