fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
Fréttir

Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu

Ritstjórn DV
Föstudaginn 22. maí 2026 07:58

Tómas Guðbjartsson Mynd: Fréttablaðið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekkja Erítreumannsins Andemariam Beyene á rétt á bótum frá íslenska ríkinu samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur en Andemariam var sjúklingur skurðlæknisins Tómasar Guðbjartssonar á Landspítalanum. Var Andemariam sem lést árið 2014 fyrsti sjúklingurinn sem sendur var í plastbarkaígræðslu í Stokkhólmi sem framkvæmd var af ítalska skurðlækninum Paolo Macchiarini. Síðar kom í ljós að enginn vísindalegur grundvöllur var fyrir ígræðslunum og létust allir sjúklingar sem undirgengust þær. Í dómi héraðsdóms er framganga Tómasar harðlega gagnrýnd og meðal annars sagt að hann hafi sett eigin metnað ofar velferð Andemariam og hafi brotið lög og logið.

Tómas er einn af þekktustu læknum landsins og fór nokkuð fyrir honum í opinberri umræðu en hann hefur verið í leyfi frá Landspítalanum vegna plastbarkamálsins og látið lítið fyrir sér fara undanfarið.

Dómur héraðsdóms hefur ekki verið birtur opinberlega en bæði RÚV og Vísir hafa hann undir höndum og hafa greint frá efni hans.

Segir í dómnum að Tómas hafi sýnt af sér stórfellt gáleysi og valdið Andemariam skaða þegar hann hafði milligöngu um að hann var sendur í plastbarkaígræðslu í Svíþjóð árið 2011. Andemariam og fjölskylda hans bjuggu á þessum tíma á Íslandi en hann stundaði hér nám.

Engin sjúkraskrá

Í dómnum segir að Tómas hafi ekki fært samskipti við Macchiarini vegna Andemariam í sjúkraskrá eins og honum hafi borið að gera.

Fram kemur einnig að Tómas hafi í tilvísun til Svíþjóðar, vegna aðgerðarinnar, ranglega haldið því fram að öll önnur læknismeðferð væri fullreynd en Andemariam hafði verið greindur með krabbamein í hálsi.

Segir í dómnum að Tómas hafi vitað það fullvel að Andemariam hafi ekki verið í lífshættu og ekki hafi verið þörf á að láta hann gangast undir aðgerð eins og þessa sem hafi verið lífshættuleg tilraun. Með hinni röngu tilvísun hafi Tómas sýnt af sér saknæma og ámælisverða háttsemi.

Segir einnig í dómnum að tölvupóstsamskipti á milli Macchiarini og Tómasar sýni fram á að fullyrðingar þess síðarnefnda um að sá fyrrnefndi hefði blekkt hann standist ekki.

Tómas hélt einnig þáverandi yfirlækni á deildinni þar sem hann starfaði og hans næsta yfirmanni fyrir utan málið. Sagði sá læknir fyrir dómi að hann hefði fyrst frétt af aðgerðinni í fjölmiðlum og hefði hann vitað af því sem Tómas væri að gera hefði hann beitt valdi sínu til að koma í veg fyrir að Andemarian yrði sendur í aðgerðina.

Segir í dómnum að með því að upplýsa ekki yfirmann sinn hafi Tómas ekki fylgt verkferlum Landspítalans. Dómurinn segir hann einnig hafa brotið lög um sjúkraskrár og læknalög og logið í fræðigrein sem birt var nokkrum mánuðum eftir aðgerðina en í greininni hafi verið ranglega fullyrt að Andemarian hafi verið orðinn einkennalaus. Tómas hafi sett sinn eigin metnað ofar velferð Andemariam og notað hann í auglýsingaskyni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Pawel ánægður með að Sjálfstæðismenn vilji samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður – „Mistök í skjalavinnslu“ segir Jón Pétur

Pawel ánægður með að Sjálfstæðismenn vilji samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður – „Mistök í skjalavinnslu“ segir Jón Pétur
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Vill aukið eftirlit með störfum lögreglu – „Nú hefur lögreglan beitt rafbyssu á mann sem var að hlaupa í burtu frá henni“

Vill aukið eftirlit með störfum lögreglu – „Nú hefur lögreglan beitt rafbyssu á mann sem var að hlaupa í burtu frá henni“
Fréttir
Í gær

Láta Snorra heyra það vegna færslu um tjáningarfrelsi og ESB – „Ef svo er, þá er þessi málflutningur þinn alveg óboðlegur“

Láta Snorra heyra það vegna færslu um tjáningarfrelsi og ESB – „Ef svo er, þá er þessi málflutningur þinn alveg óboðlegur“
Fréttir
Í gær

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“
Fréttir
Í gær

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“

Atli hneykslaður á Útlendingastofnun – „Hann er líklega betri þjóðfélagsþegn heldur en ég og þú“
Fréttir
Í gær

Ný tryggingavernd fyrir fólk sem glímir við ófrjósemi 

Ný tryggingavernd fyrir fólk sem glímir við ófrjósemi 
Fréttir
Í gær

Halla segir tvennt vera sláandi við stýrivaxtahækkunina – „Hún er orðin aðkallandi spurningin“

Halla segir tvennt vera sláandi við stýrivaxtahækkunina – „Hún er orðin aðkallandi spurningin“
Fréttir
Í gær

Andartaki eftir að hún lagði bílnum sínum hófst martröðin – „Ég er að deyja“

Andartaki eftir að hún lagði bílnum sínum hófst martröðin – „Ég er að deyja“