

Þetta er í fyrsta sinn sem tólf mánaða börn fá leikskólapláss í sveitarfélaginu.
„Í síðustu sveitarstjórnarkosningum lagði Framsókn í Kópavogi mikla áherslu á leikskólamálin. Í framhaldi af kosningunum tók Framsókn formennsku í leikskólanefnd og leiddi starfshóp um úrbætur í leikskólamálum sem síðar fengu nafnið Kópavogsmódelið. Þetta árangursríka skref er liður í uppbyggingu Kópavogsmódelsins, þar sem við leggjum áherslu á að setja heimilin í forgang,” segir Orri í tilkynningu sem barst fjölmiðlum.
Hann segir að með innleiðingu Kópavogsmódelsins sé verið að tryggja að mönnun í leikskólum gangi vel. „Það gerir okkur kleift að taka inn yngri börn en nokkru sinni fyrr. Þessi stefna er ekki aðeins mikilvæg fyrir börnin, heldur einnig fyrir fjölskyldur þeirra.“
Um 30% heimila leikskólabarna í Kópavogi eru ekki að greiða fyrir leikskólavistina, sem stuðlar að jafnrétti í aðgengi að menntun að sögn Orra.
„Með því að veita tólf mánaða börnum leikskólapláss erum við að leggja grunn að betri framtíð, þar sem börn geta hafið menntun sína fyrr á lífsleiðinni, sem er grundvöllur að vellíðan barna og velgengi,“ segir Orri ennfremur.