fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fréttir

Björgun Jóns Péturs í gær rataði í dagbók lögreglunnar – „Vorum orðnir kaldari en mig óraði fyrir“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 21. apríl 2026 08:29

Jón Pétur Zimsen. Mynd: Alþingi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lenti í kröppum dansi í gærkvöldi á kajakveiðum með syni sínum. Lentu þeir í vandræðum með pedalspaðana á öðrum kajakinum með þeim afleiðingum að báðum kajökum hvolfdi.

„Eftir smá svaml, ca 30 mín,í sjónum og uppi á kili annars kajaksins þangað til 2 björgunarsveitarmenn komu á sæköttum okkur til bjargar,“ skrifar Jón Pétur.

Í færslu sinni á Facebook segir hann mikla fagmennsku hafa verið hjá björgunarsveitinni og minnir fólk á að styrkja þær með öllum ráðum.

„Vorum orðnir kaldari en mig óraði fyrir, mældur líkamshiti 32 gráður. En með öruggum handbrögðum tók það ca 30 mínútur að koma okkur upp i 37 gráður undir hitateppum og með volgt innrennsli í æð.“

Feðgarnir voru fluttir á bráðamóttökuna og segir Jón Pétur þá hafa fengið afbragðs móttökur og verið útskrifaðir um klukkustund síðar.

„Fengum þennan nýmóðins klæðnað á spítalanum og Kvika (hundurinn minn) var glöð að fá okkur feðga heila á húfi heim. Vorum í björgunarvestum og erum ágætlega vanir en slysin gera ekki boð á undan sér. Þá er gott að búa á Íslandi þar sem þrautþjálfað fólk, bæði í sjálfboðavinnu og á spítölunum er til staðar þegar við þurfum á því að halda. Takk allir sem komu að þessu brasi okkar í kvöld, erum báðir óendanlega þakklátir.“

Atvikið rataði í dagbók lögreglunnar þar sem segir um atvikið: Lögreglustöð 4 – Grafarvogur- Mosfellsbær- Árbær: Tilkynnt um tvö aðila sem völtu kayak, björgunarsveit fór og bjargaði þeim í land, þeir voru kaldir en ómeiddir voru fluttir á bráðamóttöku til frekari aðhlynningar.

Uppfært 22. apríl kl. 11.33:

Tveimur dögum eftir atvikið segir Jón Pétur það ljóst eftir samtöl sín við björgunarsveitina og aðra að þetta stóð tæpt

„Þrátt fyrir að vera nærri landi ca. 150 metra og að það væri logn og sléttur sjór þá er þessi staður úr alfaraleið. Ég hefði aldrei getað synt þessa vegalengd vegna þess að smekkbuxurnar heftu fætur mína algerlega. Sonurinn hefði líklega getað það, það huggar. En bara að vera þarna úti í 30-60 mín í viðbót hefði lækkað líkamshita enn meira og þá hefði líklega ekki þurft að spyrja að leikslokum.“

Í færslu sem Jón Pétur birti miðvikudagsmorgun 22. apríl þakkar hann björgunarsveitunum og bráðamóttökunni aftur fyrir fagleg vinnubrögð og „lífgjöfina”.
„Munum þó að lífið allt er ein àhætta, lærum og þroskumst af reynslunni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“

Hildur María sýnir reikninginn: „Það kostar mikið að eiga barn í Kópavogi, hvað þá fleira en eitt“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“

Segir enga þörf á að fækka akreinum á Suðurlandsbraut – „Mátt ekki láta hugmyndafræði einhvers grenjandi minnihluta ráða“