fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Fréttir

Múlaborgarmálið: Réttarhöld yfir Hannes Valle framundan

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 21. apríl 2026 20:30

Hannes Valle Þorsteinsson. Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðalmeðferð í máli gegn Hannesi Valle Þorsteinssyni, sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn ungu barni, í starfi sínu sem leiðbeinandi á leikskólanum Múlaborg, verður þann 28. apríl næstkomandi, við Héraðsdóm Reykjavíkur.

Samkvæmt ákæru málsins braut Hannes tvisvar gegn sama stúlkubarninu með því að hafa önnur kynferðismök en samræði gegn henni. Hann er þar sagður hafa misnotað freklega yfirburðastöðu sína gagnvart stúlkunni, brugðist trausti hennar og trúnaði hennar, sem starfsmaður leikskólans. Í síðara brotinu er hann jafnframt sagður hafa notfært sér að þannig var ástatt um stúlkuna að hún gat ekki spornað við verknaðinum vegna svefndrunga. Frekari lýsingar á meintum brotum voru afmáðar úr þeirri útgáfu ákærunnar sem fjölmiðlum barst frá embætti héraðssaksóknara.

Ásakanir um brot gegn fleiri börnum

Mun fleiri tilkynningar en er varða þessi meintu brot Hannesar gegn einu barni bárust lögreglu við rannsókn málsins. Niðurstaðan var sú að þrjú mál voru send áfram frá lögreglu til héraðssaksóknara en embættið ákvað að ákæra aðeins í einu máli.

Sex af ákvörðunum sem varða niðurfellingu rannsóknar eða ákvörðunar um að ákæra ekki voru kærðar til ríkissaksóknara. Niðurstaða ríkissaksóknara var að fella ákvarðanirnar úr gildi í þremur tilvikum og hefur ríkissaksóknari fyrirskipað lögreglu að rannsaka þessi þrjú mál aftur.

Það er því mögulegt að Hannes Valle verði ákærður fyrir fleiri kynferðisbrot síðar. Sem fyrr segir þarf hann að svara til saka í þessu máli þann 28. apríl næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Kókaín í vötnum hefur áhrif á hegðun villtra laxa

Kókaín í vötnum hefur áhrif á hegðun villtra laxa
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Íbúum á Álftanesi brugðið eftir að steypumúr var reistur – Vilja svör frá bæjarstjórn Garðabæjar

Íbúum á Álftanesi brugðið eftir að steypumúr var reistur – Vilja svör frá bæjarstjórn Garðabæjar
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Ása segir frá augnablikinu þegar eiginmaðurinn játaði allt fyrir henni – „Hann virtist mjög taugaóstyrkur“

Ása segir frá augnablikinu þegar eiginmaðurinn játaði allt fyrir henni – „Hann virtist mjög taugaóstyrkur“
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Björgun Jóns Péturs í gær rataði í dagbók lögreglunnar – „Vorum orðnir kaldari en mig óraði fyrir“

Björgun Jóns Péturs í gær rataði í dagbók lögreglunnar – „Vorum orðnir kaldari en mig óraði fyrir“
Fréttir
Í gær

Arnór greinir frá uppákomu á aðalfundi KFUM og KFUK – Tveir menn vildu útiloka sum börn frá sumarbúðum

Arnór greinir frá uppákomu á aðalfundi KFUM og KFUK – Tveir menn vildu útiloka sum börn frá sumarbúðum
Fréttir
Í gær

Björn Valur ósáttur og gagnrýnir Ingu Sæland – „Hver stendur með kennurum – ef einhver?“

Björn Valur ósáttur og gagnrýnir Ingu Sæland – „Hver stendur með kennurum – ef einhver?“