
Formenn VR og Eflingar, Halla Gunnarsdóttir og Sólveig Anna Jónsdóttir, takast nú á fyrir opnum tjöldum um launahækkun þeirrar fyrrnefndu, en stjórn VR samþykkti í síðustu viku að hækka grunnlaun Höllu verulega. Halla hefur líkt Sólveigu við eltihrelli sem Sólveig gefur lítið fyrir og segir það þekkt stef að gagnrýni hennar sé vísað á bug með vísan til persónu hennar.
Sjá einnig: Laun formanns VR hækkuð verulega
Halla skrifar í færslu á Facebook eftir harða gagnrýni Sólveigar á launahækkun hennar:
„Mér líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli. Ef ég tjái mig er líklegt að næsta frétt á eftir verði upp úr einhverjum Facebook-orðaflaumi Sólveigar Önnu. Ég hef almennt haft þá afstöðu að svara ekki. Ég tel það ekki gagnast VR og alls ekki verkalýðshreyfingunni í heild sinni,“ skrifaði Halla í færslu á Facebook eftir harða gagnrýni Sólveigar sem telur að launahækkun Höllu sé óhófleg. Sólveig hefur eins gagnrýnt þá ákvörðun VR að hækka heildarlaun Höllu frá félaginu verulega og niðurgreiða þau svo með því að láta greiðslur sem Halla fær sem varaforseti ASÍ renna beint til félagsins í staðinn. Halla skrifar:
„Það hvort aðrar launagreiðslur gangi til VR eða komi til frádráttar frá mínum launum er útfærsluatriði sem hefur ekkert með Eflingu eða Sólveigu Önnu að gera. Það hefur heldur engin áhrif á ASÍ, öfugt við það sem hún heldur fram. Þetta á við um þau laun sem ég hef fengið fyrir að gegna embætti varaforseta ASÍ, en það gerum við báðar. Í starfinu felst að sitja tvo fundi í mánuði á hefðbundnum vinnutíma og þeir taka að jafnaði á milli 15 og 45 mínútur. Fyrir það fáum við varaforsetar 243.900 kr. á mánuði sem er nú hluti af heildarkjörum mínum fyrir að gegna formennsku í VR. Fjölgun varaforseta var einmitt eitt af keppikeflum Sólveigar Önnu fyrir nokkrum árum, en þeir hafa þó ekkert lagalegt hlutverk innan ASÍ annað en að gegna í forföllum forseta “
Sólveig Anna hefur nú svarað Höllu fullum hálsi og segist standa við gagnrýni sína.
„Formaður VR hefur nú ritað færslu hér á Facebook þar sem hún gerir mér upp ýmsar undarlegar og órökstuddar sakir og lætur eins og gagnrýni mín á stjórn VR, sem hefur tekið einhliða ákvörðun án nokkurrar umræðu á vettvangi miðstjórnar ASÍ, um að breyta hlutverki varaforseta ASÍ úr sameiginlegum málsvara hreyfingarinnar í fjárhagslegan bakhjarl formanns VR og tækifæri til að lækka launakostnað félagsins, sé aðeins til komin vegna þess að ég sé svo vond og það sem hún kallar pótískan eltihrelli. Þetta er þekkt stef – svona hefur því miður meira og minna öllum athugasemdum mínum, vangaveltum og kröfum verið mætt á vettvangi íslenskrar verkalýðshreyfingar – það sem ég bendi á eða gagnrýni er ekki vandamálið – heldur að ég skuli dirfast að gera það. “
Sólveig telur ákvörðun stjórnar VR ekki samrýmast lögum ASÍ en þar að auki sé það verulegt dómgreindarleysi að hækka laun eins stærsta stéttarfélags landsins um að lágmarki 12 prósent, í raun miklu meira, þegar verðbólga er að aukast, vextir að hækka og kjarasamningar í uppnámi. Halla láti eins og Sólveig kæri sig ekki um að Halla gæti hagsmuna félagsmanna VR. Sólveig segir þetta undarlega ályktun enda sé hún ekki að gagnrýna störf Höllu heldur að ASÍ sé blandað inn í óhóflega launahækkun hennar. Raunhækkun launa Höllu nemur 188.936 krónum, en það byggir á því að um þær 235 þúsund krónur sem Halla fær frá ASÍ mánaðarlega renni til VR í staðinn. Láti Halla af störfum sem varaforseti ASÍ rennur ekkert til VR á móti þeim 1.913.000 kr sem hún fær frá VR eftir hækkunina, en laun hennar frá VR námu áður 1.488.412 krónum. Ekki er sjálfgefið að formaður VR sé jafnframt varaforseti ASÍ enda eru varaforsetar kosnir sérstaklega á sambandsþingi sem fer fram á tveggja ára fresti.
„… að hún og samverkafólk hennar í stjórn VR skuli leggjast svo lágt að draga ASÍ, án umræðu eða samþykkis, inn í atburðarás sem snýst um að hækka laun formanns VR verulega – langt umfram kjarasamningsbundnar hækkanir, meira að segja langt umfram launaskrið bæði á almennum og opinberum markaði – og láta svo ASÍ niðurgreiða kostnaðinn. Enda er það til háborinnar skammar – og það eru eflaust flestir sem sjá það – meðal annars félagsfólk VR sem myndi kannski heldur vilja að formaðurinn einbeitti sér að því að leysa þau fjölmörgu vandamál sem við stöndum frammi fyrir – frekar en að skara eld að eigin köku.“