fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Fréttir

KAPP og Laxey undirrituðu samning í Barcelona

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 21. apríl 2026 13:11

Ólafur Karl Sigurðarson, Hallgrímur Steinsson, Valþór Hermannsson, Lárus Ásgeirsson og Daði Pálsson við undirritun samningsins í Barcelona í dag.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

KAPP ehf. og Laxey undirrituðu samning á Sjávarútvegssýningunni í Barcelona á Spáni í dag um hönnun og forritun á heildstæðu kerfi sem sameinar vöktun vatnsgæða og stjórnun annars lykilbúnaðar, ásamt heildaryfirsýn yfir rekstur kerfisins. Markmiðið er að skapa öflugt og notendavænt umhverfi sem styður við öruggan, skilvirkan og gagnadrifinn rekstur eins og segir í tilkynningu. 

Laxey hefur byggt upp metnaðarfulla starfsemi á sviði landeldis, þar sem áhersla er lögð á sjálfbærni, nýsköpun og ábyrga uppbyggingu. Með samningnum við KAPP er stigið mikilvægt skref til frekari samþættingar stýringar, vöktunar og yfirsýnar í rekstrinum.

KAPP sérhæfir sig í þjónustu og lausnum fyrir fisk- og kjúklingavinnslu, fiskeldi og matvöruverslanir. Félagið hefur á undanförnum misserum aukið enn frekar þjónustu sína við fiskeldisfyrirtæki, bæði á sviði hugbúnaðar og vélbúnaðarlausna, til að mæta vaxandi þörfum greinarinnar.

Ólafur Karl Sigurðarson, forstjóri KAPP, segir samstarfið við Laxey endurspegla þá þróun sem nú á sér stað innan fiskeldisgeirans.

„Við leggjum ríka áherslu á að tryggja framúrskarandi þjónustu fyrir fiskeldisgeirann, rétt eins og aðrar atvinnugreinar sem við þjónustum. Samstarfið við Laxey er mikilvægt skref í þeirri vegferð og fellur afar vel að okkar styrkleikum á sviði sjálfvirkni, stýringar og þróunar á lausnum fyrir tæknilega krefjandi starfsemi,“ segir Ólafur Karl.

„Við erum spennt að fá KAPP til liðs við okkur sem hafa mikla reynslu í fiskeldi og iðnstýringum. Stjórnkerfi stöðvarinnar er mjög mikilvægur þáttur í að hámarka framleiðni og gæði. Það er mikilvægt að hafa sterka samstarfsaðila í þeirri þróunarvinnu,“ segir Hallgrímur Steinsson, rekstrarstjóri Laxey.

Samstarfið endurspeglar vaxandi mikilvægi samþættra stýri- og upplýsingakerfa í landeldi, þar sem rauntímagögn, sjálfvirkni og skýr heildaryfirsýn skipta sífellt meira máli fyrir árangursríkan rekstur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Íbúum á Álftanesi brugðið eftir að steypumúr var reistur – Vilja svör frá bæjarstjórn Garðabæjar

Íbúum á Álftanesi brugðið eftir að steypumúr var reistur – Vilja svör frá bæjarstjórn Garðabæjar
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Vikumatarkarfa Írisar fyrir 3 manna fjölskyldu kostaði 9.920 kr. – Svona fór hún að því

Vikumatarkarfa Írisar fyrir 3 manna fjölskyldu kostaði 9.920 kr. – Svona fór hún að því
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Björgun Jóns Péturs í gær rataði í dagbók lögreglunnar – „Vorum orðnir kaldari en mig óraði fyrir“

Björgun Jóns Péturs í gær rataði í dagbók lögreglunnar – „Vorum orðnir kaldari en mig óraði fyrir“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Fagna 12 mánaða börnum í leikskólum Kópavogs

Fagna 12 mánaða börnum í leikskólum Kópavogs
Fréttir
Í gær

Björn Valur ósáttur og gagnrýnir Ingu Sæland – „Hver stendur með kennurum – ef einhver?“

Björn Valur ósáttur og gagnrýnir Ingu Sæland – „Hver stendur með kennurum – ef einhver?“
Fréttir
Í gær

Jón Viðar segir að Kaffistofa Samhjálpar ætti að vera í Ráðhúsinu

Jón Viðar segir að Kaffistofa Samhjálpar ætti að vera í Ráðhúsinu
Fréttir
Í gær

Lögmaður Helga Bjarts stígur fram og gagnrýnir fjölskyldu drengsins

Lögmaður Helga Bjarts stígur fram og gagnrýnir fjölskyldu drengsins
Fréttir
Í gær

Segir heilt hverfi borgarinnar búa í óvissu – „Meiri þrengsli, lengri ferðatíma og endalausar tafir“

Segir heilt hverfi borgarinnar búa í óvissu – „Meiri þrengsli, lengri ferðatíma og endalausar tafir“