
Stjórn VR samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að hækka laun formannsins, Höllu Gunnarsdóttur, úr 1.427.329 kr í 1.913.000 kr. Þetta kann að virðast töluverð hækkun en taka þarf þó tillit til þess að Halla naut einnig greiðslna sem varaforseti ASÍ sem námu 235.652 kr en eftir launahækkunina mun Halla aðeins þiggja laun frá VR og greiðslurnar frá ASÍ renna til VR. Raunhækkunin nemur því 188.936 kr.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar gagnrýnir þetta fyrirkomulag harðlega. Það sé siðlaust og auk þess óheimilt samkvæmt lögum ASÍ. VR hafi í raun ákveðið að nýta greiðslur úr sameiginlegum sjóði aðildarfélaga ASÍ til þess að niðurgreiða laun til formanns síns og það þrátt fyrir að formaður VR eigi ekki sjálfkrafa rétt á því að gegna stöðu varaforseta. Þetta kemur fram í grein Sólveigar hjá Vísi en þar vísar hún meðal annars til minnisblaðs launanefndar VR sem sent var stjórn félagsins þann 10. mars.
Sjá einnig: Laun formanns VR hækkuð verulega
Sólveig rekur að miðstjórn ASÍ er skipuð forseta, þremur varaforsetum og ellefu miðstjórnendum. Þessir aðilar eru kosnir sérstaklega á sambandsþingi sem fer fram á tveggja ára fresti. Allir fullgildir félagsmenn aðildarfélaga eru kjörgengir í miðstjórn sem hefur æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Samkvæmt lögum ASÍ er enginn löglega kosinn í miðstjórn nema hann fái að minnsta kosti helming atkvæða. Hvergi kemur fram í lögum að formenn einstakra aðildarfélaga eigi sjálfkrafa rétt á stöðu varaforseta.
Bendir Sólveig á að varaforsetar geri sjálfstæðan ráðningarsamning við ASÍ sem vinnuveitanda og er starfið tímabundið enda miðstjórn kosin til tveggja ára í senn.
Í ljósi framangreinds segir Sólveig ákvörðun stjórnar VR óforsvaranlega. Þar sé gengið út frá því að formaður VR sé og verði varaforseti ASÍ, þrátt fyrir að lög sambandsins kveði á um annað. Eins hafi stjórnin þarna ákveðið að launagreiðslur frá ASÍ, sem séu ætlaðar varaforsetanum vegna stöðu hans hjá miðstjórn, verði notaðar til að niðurgreiða laun VR til Höllu. Þetta séu peningar sem koma frá öllum aðildarfélögum ASÍ, þar með talið frá Eflingu. Stjórn VR hafi ekki verið í nokkru samráði við miðstjórn um málið.
Efling greiði á ári hverju tugi milljóna til ASÍ og nefnir Sólveig sem dæmi að áætlað sé að félag hennar greiði um 150 milljónir til sambandsins á þessu ári. Þessum peningum sé ætlað að verja hagsmuni allra sem tilheyra aðildarfélögum sambandsins, en ekki til að eitt aðildarfélag geti niðurgreitt laun formanns síns.
„Þessi laun eru ekki tækifæri einstakra félaga til að lækka eigin launakostnað. Með ákvörðun stjórnar VR hefur félagið tekið einhliða ákvörðun um að breyta hlutverki varaforseta ASÍ úr sameiginlegum málsvara hreyfingarinnar í fjárhagslegan bakhjarl formanns VR. Þetta er óheimilt samkvæmt lögum ASÍ, það er siðferðislega rangt og það grefur undan trausti og trúverðugleika verkalýðshreyfingarinnar.“
Sólveig tekur fram að ef stjórn VR vilji, þrátt fyrir að forsendur langtímakjarasamninga séu við það að bresta, hækka laun formanns síns langt umfram það sem félagsfólk VR fær samkvæmt þeim kjarasamningum, þá eigi stjórnin að gera það á eigin ábyrgð án þess að blanda ASÍ í málið.
Samkvæmt minnisblaðinu ákvað Halla að sækjast ekki eftir embætti formanns Lífeyrissjóðs verslunarmanna (LÍV), en því starfi hafði forveri hennar, Ragnar Þór Ingólfsson, gegnt. Sökum þessa voru heildarlaun Höllu töluvert lægri en laun Ragnars enda fær hún ekki þær tæpu 400 þúsund krónur sem Ragnar fékk frá LÍV. Launanefnd horfði svo til launa annarra aðila innan verkalýðshreyfingarinnar, svo sem til formanna Starfsgreinasambandsins og BSRB sem bæði eru með 1.950.000 krónur á mánuði. Lagði launanefnd því til að heildarlaun Höllu yrðu hækkuð upp í 1.913.000 kr, en þá muni laun frá ASÍ eða LÍV renna til VR.
Af minnisblaðinu og grein Sólveigar má því ráða að raunhækkun launa Höllu hafi í reynd numið um 485 þúsund krónum. Þetta eru launin sem hún hefur nú rétt til óháð því hvort hún gegni formennsku í LÍV eða stöðu varaforseta ASÍ. Gegni hún slíkum aukastörfum þá renna greiðslur fyrir þau beint til VR til lækkunar á launakostnaði. Gegni hún þeim ekki þá þarf VR eftir sem áður að greiða henni 1.913.000 kr. á mánuði frekar en 1.488.412 kr. eins og áður.