
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur stefnt manni vegna ógreiddra reikninga fyrir sjúkraflutninga. Maðurinn ber skandinavískt nafn en hefur aldrei haft lögheimili á Íslandi.
Frá gamlársdegi árið 2023 og fram til nóvember árið 2024 eru stílaðir fjórir reikningar á manninn fyrir sjúkraflutninga. Fyrsti reikningurinn, dagsettur 31.12. 2023, er upp á 52.751 kr. Næsti reikningur er 19.10 árið 2024 og er 57.340 kr. Þriðji reikningurinn er dagsettur viku síðar og er að fjárhæð 114.680 kr. Síðasti reikningurinn er dagsettur 8.11. 2024 og er að fjárhæð 57.340 kr.
Samtals gera þetta rúmlega 282 þúsund krónur sem maðurinn skuldar í sjúkraflutninga.
Stefnan er birt í Lögbirtingablaðinu þar sem ekki hefur tekist að birta manninum hana. Heimilisfang við Kópavogsbraut er tilgreint á útgefnum reikningi en ekki tókst að birta manninum stefnuna á því heimilisfangi.
Skorað er á manninn, sem er á sextugsaldri, að greiða stefnukröfurnar eða mæta fyrir dóm þegar málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 28. maí.