

Myndir af ísraelskum hermanni að eyðileggja styttu af Jésú Kristi hefur vakið hörð viðbrögð. Utanríkisráðherra Ísrael biðst afsökunar á atvikinu.
Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá þessu.
Myndir af ísraelskum hermanni brjóta og bramla líkneski af Jésú Kristi hafa vakið hörð viðbrögð. En þær voru teknar á hernumdum svæðum í suðurhluta Líbanon. Um þriðjungur Líbana eru kristnir.
Líkneskið var af Jésú krossfestum og stóð fyrir utan heimili nálægt bænum Debel, austast í suðurhluta Líbanon. En Ísraelar réðust inn í Líbanon á sama tíma og hernaður þeirra og Bandaríkjamanna gegn Íran hófst í lok febrúar. Yfirlýstur tilgangur er að ganga á milli bols og höfuðs á samtökunum Hezbollah.
„Við hörmum vanvirðingu krossins, okkar heilaga tákns og allra trúarlegra tákna,“ segir Fadi Flaifel, prestur í Debel. „Þetta gengur gegn mannréttindayfirlýsingum og er ósiðlegt.“
Sagði Flaifel jafn framt að þetta væri ekki einsdæmi. Ísraelskir hermenn, sem eru að stærstum hluta gyðingar, hefðu vanvirt önnur kristin trúartákn.
Ísraelar sjálfir hafa viðurkennt að ljósmyndirnar séu raunverulegar og að málið sé litið alvarlegum augum.
Benjamín Netanyahu forsætisráðherra sagðist leiður yfir málinu og Gideon Saar utanríkisráðherra bað alla kristna menn afsökunar.