
Íbúi við Gránufélagsgötu á Akureyri, þar sem viðamikil lögreguaðgerð með aðstoð Sérsveitar ríkislögreglustjóra fór fram í gærkvöld, segir að viðbúnaður í aðgerðinni hafi verið meiri en greint hefur verið frá í fjölmiðlum. RÚV og Vísir hafa greint frá málinu.
Í frétt RÚV greinir frá því að minnst fjórir lögreglubílar hafi verið á vettvangi. Samkvæmt viðmælanda DV voru um átta bílar á svæðinu tengdir aðgerðinni, þar á meðal tveir ómerktir sérsveitarbílar.
„Það var ekki bara sérsveitin á staðnum, heldur setti almenna lögreglan á sig byssubelti með Glock-skammbyssum,“ segir maðurinn. Einnig hafi lögreglumenn verið útbúnir skildum, hjálmum og öðrum öryggisbúnaði.
Samkvæmt frétt Vísis er einn í haldi lögreglu vegna líkamsárásar og annar var fluttur á sjúkrahús en er ekki talinn vera í lífshættu.
Viðmælandi DV segir að lögregluútköll að heimilum mannanna í götunni séu tíð. Þeir búi í félagslegu húsnæði og lögregluheimsóknir til þeirra komi í bylgjum
„Þær eru í bylgjum, nokkrar á mánuði en svo er rólegt í 1-3 mánuði þar til ballið byrjar á ný.“