
Íslenska kvennalandsliðið fellur um eitt sæti á nýjum heimslista FIFA og hefur sætaskipti við Kína.
Ísland situr því í 17. sæti listans, en liðið hefur leikið tvo leiki síðan síðasta útgáfa kom út. Ísland vann 1-0 sigur á Úkraínu, sem er í 35. sæti listans, og tapaði naumlega 0-1 fyrir Englandi, sem er í 3. sæti.
Næsta verkefni liðsins eru síðustu tveir leikirnir í undankeppni HM 2027.
Ísland mætir Úkraínu föstudaginn 5. júní á Stadion Miejski í Mielec í Póllandi og svo Spáni þriðjudaginn 9. júní á Laugardalsvelli.
Í kjölfarið á undankeppninni verður dregið í fyrstu umferð umspilsins fyrir HM 2027 og verður hún leikin í október.