

Um var að ræða viðhorfskönnun um búsetu- og skipulagsóskir sem unnin var í marsmánuði.
Í könnuninni var meðal annars spurt hvaða þættir skipta mestu máli við val á húsnæði og nærumhverfi auk þess sem viðhorf þátttakenda til þéttingar byggðar í þeirra nánasta nærumhverfi var kannað. Alls bárust rúmlega 2.000 svör og svarhlutfallið í könnuninni var 50%.
Aðspurð hvaða atriði skipta mestu máli við val á nærumhverfi eru almennt öryggi, gott samfélag og vinaleg samskipti efst á lista. Nálægð við verslanir, náttúru og tengingar við gönguleiðir skipta þátttakendur einnig miklu máli heilt á litið. Bent er á það í mánaðarskýrslu HMS að áherslur taki þó eðlilega breytingum eftir æviskeiðum, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan.
Í könnuninni var einnig spurt um viðhorf til þéttingar byggðar í nánasta nærumhverfi svarenda. Meirihluti íbúa höfuðborgarsvæðisins er andvígur þéttingu byggðar í nánasta nærumhverfi við heimili sitt. Yngri svarendur eru þó almennt jákvæðari í garð þéttingar en þeir sem eldri eru auk þess sem íbúar í miðborg Reykjavíkur (póstnúmeri 101) eru jákvæðari en þeir sem búa í úthverfum borgarinnar og í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.
