
Chelsea tapaði 3-0 fyrir Brighton á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í gær og hefur nú tapað fimm deildarleikjum í röð án þess að skora.
Stjórinn Liam Rosenior var æfur eftir leik og sparaði ekki stóru orðin.
„Þetta var langversta frammistaðan síðan ég kom. Þetta var óásættanlegt í alla staði, bæði hvað varðar hugarfar og frammistöðu. Ég get ekki lengur varið þetta, það er ekki hægt,“ sagði Rosenior eftir leik.
Hann kallaði einnig eftir viðbrögðum.
„Við þurfum að horfa í spegil, ég líka. Ég get ekki haldið áfram að verja þetta sem við erum að bjóða upp á.“
Chelsea er nú sjö stigum á eftir Liverpool í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Pressa er farin að myndast á Rosenior, sem tók við í upphafi árs.