

Nú í kvöld varð umferðarslys á Þorlákshafnarvegi þegar vörubíll valt.
Samkvæmt ökumanni sem beið í röð við slysstaðinn var sjúkrabíll kallaður til en DV er ekki kunnugt um hvort bílstjóri vörubílsins sé mikið slasaður.
Tildrög slyssins eru ókunn á þessu stigi en miðað við myndir varð töluvert tjón á bifreiðinni og farminum.