fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
433Sport

Sjáðu þegar nýrri rangstöðureglu Wenger var beitt í fyrsta sinn

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 20. apríl 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný rangstöðuregla sem Arsene Wenger á heiðurinn á var notuð í fyrsta sinn í keppnisleik um helgina og viðbrögðin láta ekki á sér standa.

Reglan gengur út á að sóknarmaður sé aðeins dæmdur rangstæður ef það er skýrt bil á milli hans og síðasta varnarmanns. Ef einhver hluti líkama hans er enn í línu við varnarmanninn telst hann ekki rangstæður.

Arsene Wenger. Mynd/Getty

Þetta var notað í kanadísku úrvalsdeildinni, þar sem Alejandro Diaz skoraði mark fyrir Pacific FC gegn Halifax Wanderers, mark sem hefði verið dæmt af í öðrum deildum.

Wenger segir að þessi nýja regla leyfi sóknarmönnum að njóta vafans á ný, sem er mikilvægt að hans mati þar sem innleiðing VAR hefur fækkað mörkum.

Hér að neðan má sjá hvernig reglan var notuð í marki Diaz. Knattspyrnuáhugamenn eru alls ekki allir sannfærðir eftir að hafa séð þetta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Besta deildin áfram á Sýn á næsta ári

Besta deildin áfram á Sýn á næsta ári
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Liverpool alvarlega að íhuga sölu í sumar

Liverpool alvarlega að íhuga sölu í sumar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Samfélagið slegið eftir skyndilegt fráfall – Var ungur og framúrskarandi einstaklingur

Samfélagið slegið eftir skyndilegt fráfall – Var ungur og framúrskarandi einstaklingur
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Liverpool skoðar tvo leikmenn Monaco en fá samkeppni

Liverpool skoðar tvo leikmenn Monaco en fá samkeppni
433Sport
Í gær

Barcelona svarar svakalegum ásökunum forseta Real Madrid í dag

Barcelona svarar svakalegum ásökunum forseta Real Madrid í dag
433Sport
Í gær

Myrti barnsmóður sína á hrottalegan hátt og gaf hundum líkamsleifarnar – Fékk svo að ganga frjáls á ný

Myrti barnsmóður sína á hrottalegan hátt og gaf hundum líkamsleifarnar – Fékk svo að ganga frjáls á ný