fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Réðust inn á heimili og slógu mann ítrekað með öxi í höfuðið – Gripnir við að þvo föt um miðja nótt

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 20:30

Árásin átti sér stað 5. mars.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður sem er grunaður um tilraun til manndráps eða sérstaklega hættulega líkamsárás með öxi hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Er hann grunaður um að ruðst með öðrum manni inn á heimili brotaþola og veitt honum áverka.

Maðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 6. maí næstkomandi vegna árásar þann 5. mars síðastliðinn í Reykjavík.

Vopnaðir öxi og hnífi

Gerandinn og félagi hans, sem hafa hvorugir verið nafngreindir, eru sakaðir um að hafa þennan dag ruðst inn á heimili brotaþola, manns sem var þar með kærustu sinni.

Þegar lögregla og sjúkraflutningamenn komu á staðinn eftir tilkynningu var brotaþoli blóðugur og með nokkra skurði á höfðinu. Sagði hann lögreglunni að hinir tveir áðurnefndu menn hefðu komið óboðnir inn á heimilið og gerandinn slegið hann með öxi í höfuðið. Öxin hafi ekki verið eina vopnið sem sem þeir voru með heldur einnig hníf. Sagði hann að gerandinn hefði sett öxina í bakpoka eftir verknaðinn eftir að hafa ráðist á sig.

Voru að þvo föt um miðja nótt

Mennirnir voru á bak og burt en lögreglan fór að heimili félaga gerandans og fann þá báða í stigaganginum, á leið upp úr kjallaranum. Voru þeir samstundis handteknir í þágu rannsóknarhagsmuna.

Mennirnir voru báðir skólausir og sögðust hafa verið að slaka á í sameign húsnæðisins. Klukkan var langt gengin í 3:00 um nótt. Lögregla leitað í íbúðinni og sá að þvottavélin var í gangi og verið var að þrífa fatnað. Var vélin stöðvuð og hald lagt á fatnaðinn, sem og tvo bakpoka sem fundust í íbúðinni. Lögregla yfirheyrði gerandann þennan sama dag en hann neitaði að tjá sig.

Kærastan hélt að þeir myndu drepa hann

Tekin var skýrsla af kærustu brotaþolans sem sagðist hafa heyrt þegar útidyrahurðinni var sparkað upp, þá hafi hurðin að íbúð þeirra verið sparkað upp og loks hurðin að herberginu þeirra „tætt með vopnum.“

Sagðist hún hafa séð tvo grímuklædda menn vopnaða öxi og hnífi, en hún sagðist hafa þekkt þá. Þeir hefðu ráðist á kærasta sinn, annar hefði slegið hann með öxinni en hinn „slice-að“ hann með hnífnum. Hún sagðist halda að þeir væru að drepa hann.

Grunaður um að stinga ferðamann í bakið

Í gæsluvarðhaldsúrskurðinum kemur fram að gerandinn í málinu er grunaður um fleiri brot. Það er að fjöldi mála er hjá lögreglu og dómstólum landsins þar sem hann er undir rökstuddum grun um að hafa framið brot sem getur varðað allt að 16 ára fangelsi.

Kemur fram að hann hafi í byrjun febrúar lokið afplánun tveggja ára fangelsisrefsingar en síðan þá hafi hann verið handtekinn í tvígang og úrskurðaður bæði í gæsluvarðhald og einangrun. Er hann meðal annars grunaður um að hafa þann 7. febrúar veist að erlendum ferðamanni og stungið hann í bakið með hnífi.

Féllust dómarar í bæði Héraðsdómi Reykjavíkur og Landsrétti á gæsluvarðhald yfir manninum. Gildir það eins og áður segir til 6. aí næstkomandi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Fer fram á svör um öryggismál á Stuðlum og hvort reglur hafi verið brotnar

Fer fram á svör um öryggismál á Stuðlum og hvort reglur hafi verið brotnar
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Iðnver og Laxey semja um byltingarkennda lausn

Iðnver og Laxey semja um byltingarkennda lausn
Fréttir
Í gær

Tekist á um hvort áfengisvandi teljist til veikinda í augum Vinnumálastofnunar

Tekist á um hvort áfengisvandi teljist til veikinda í augum Vinnumálastofnunar
Fréttir
Í gær

Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentur

Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentur
Fréttir
Í gær

Lögregla og sérsveit hafa ekki fundið mann sem á að hafa ógnað börnum með hníf í Hafnarfirði í dag

Lögregla og sérsveit hafa ekki fundið mann sem á að hafa ógnað börnum með hníf í Hafnarfirði í dag
Fréttir
Í gær

Oddný hefur þrennt um sveitarstjórnarskoningarnar að segja – „Ólíkt hafast þeir að“ 

Oddný hefur þrennt um sveitarstjórnarskoningarnar að segja – „Ólíkt hafast þeir að“