fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fréttir

„Af hverju er verið að berjast fyrir pylsum í skólum og helst án allra takmarkana – en ekki fyrir betri næringu?“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 16:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meirihlutinn í Reykjavík vill banna unnar kjötvörur sem aðalmáltíð á matseðlum borgarinnar. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar og fyrrum borgarstjóri, er ekki lukkulegur með þessa stefnu og segir að börnum í grunnskólum borgarinnar sé þar með meinað að fá slátur og grjónagraut í skólanum sem og kótilettur í raspi.

Borgarfulltrúinn Dóra Björt Guðjónsdóttir furðar sig á gagnrýni Einars. Hún skrifar á Facebook:

„Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, hefur greinilega ákveðið að gera það að pólitísku baráttumáli að halda ótakmörkuðu unnu kjötmeti inni í skólum. Það er þrátt fyrir skýrar ráðleggingar um að draga úr neyslu þess vegna heilsufarsáhættu.“

Nú þegar meira er vitað um tengsl mataræðis og heilsu barna ákveði Einar að standa vörð um versta kostinn – unnar kjötvörur.

„Af hverju er verið að berjast fyrir pylsum í skólum og helst án allra takmarkana – en ekki fyrir betri næringu? Hverskonar frelsi er það?“

Dóra Björt segir að flestar fjölskyldur geti ákveðið það sjálfar hvort og þá hvenær pylsur séu á matinn á heimilum þeirra. Hlutverk skólanna eigi að vera að stuðla að gæða næringu og styðja við hollar venjur frekar en að grafa undan þeim. Börnin eigi það besta skilið.

„Forgangsröðun Framsóknarflokksins er þá allavega skýr – pylsurnar og unna kjötmetið er í öruggum höndum. En hvað með börnin okkar?“

Einar svarar Dóru og segir flesta sammála um að börn eigi að fá heilnæman og góðan mat en tillaga meirihlutans hvorki útfærð né kostnaðarmetin.

„Augljóslega eintóm sýndarmennska rétt fyrir kosningar. Fullt tilefni til að gera góðlátlegt grín að því.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Gylfi blæs á kjaftasögurnar – „Ég vil ekki búa til óvini til að slá pólitískar keilur“

Gylfi blæs á kjaftasögurnar – „Ég vil ekki búa til óvini til að slá pólitískar keilur“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Halla krefst úrbóta eftir að naumlega tókst að forða stórslysi

Halla krefst úrbóta eftir að naumlega tókst að forða stórslysi
Fréttir
Í gær

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“
Fréttir
Í gær

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rannsókn varpar ljósi á leynilega herferð Ísraels í Eurovision

Rannsókn varpar ljósi á leynilega herferð Ísraels í Eurovision