fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fréttir

Össur segir stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran misheppnað – Íranir skjóti ekki sprengjum á sjúkrahús og háskóla

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 13. apríl 2026 11:30

Trump og Netanyahu gengur brösuglega í Íransstríðinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran vera misheppnað. Íran virðist ráða yfir mun hnitmiðaðri tækni og heyja stríð sitt á öðrum forsendum en árásarríkin tvö.

„Í hinu misheppnaða stríði Ísraela og Bandaríkjanna á hendur Íran hafa Íranir skotið á sjöunda þúsund eldflauga og dróna á Ísrael og Flóaríkin, og amk. tíu prósent þeirra hafa náð í gegnum “varnarskjöld” (Iron Dome) þessara ríkja,“ segir Össur í færslu á samfélagsmiðlum. „Íran, sem virðist ráða yfir miklu hnitmiðaðri tækni á sviði skotflauga en nokkurn óraði fyrir, hefur eyðilagt flugvélar á Ben Gurion flugvellinum í Tel Aviv og knúið stjórnvöld til að loka honum í sex vikur fyrir borgaralegu flugi. Þeir hafa hitt sprengjum sínum á fimm stóra flugvelli í Flóaríkjunum.“

Þá séu það árásir á almenna borgara. Nefnir Össur að Ísraelar hafi á Gaza varpað sprengjum á 432 skóla, öll 36 sjúkrahús og 930 árásir á heilsugæslustöðvar. Þá hafi Ísrael gjöreyðilagt 63 háskólabyggingar.

„En hversu marga skóla, heilsugæslustöðvar, sjúkrahús eða háskóla hafa Íranir skotið sprengjum á? Enga. Hvorki ég né gervigreindin höfum séð nokkrar staðfestingar á slíkum árásum,“ segir Össur. „Íran virðist heyja stríð sitt við Ísrael og Bandaríkin á öðrum forsendum en Ísraelar á Gaza.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Gylfi blæs á kjaftasögurnar – „Ég vil ekki búa til óvini til að slá pólitískar keilur“

Gylfi blæs á kjaftasögurnar – „Ég vil ekki búa til óvini til að slá pólitískar keilur“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Halla krefst úrbóta eftir að naumlega tókst að forða stórslysi

Halla krefst úrbóta eftir að naumlega tókst að forða stórslysi
Fréttir
Í gær

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“
Fréttir
Í gær

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rannsókn varpar ljósi á leynilega herferð Ísraels í Eurovision

Rannsókn varpar ljósi á leynilega herferð Ísraels í Eurovision