fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
Fréttir

Risasekt og fangelsisdómur Eiríks staðfestur í Landsrétti – Hefur fjórar vikur til að borga

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 22. maí 2026 11:30

Skattsvikin áttu sér stað í rekstri hreingerningarfyrirtækisins PURUS.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur hefur staðfest dóm yfir Eírík Hilmarssyni fyrir meiriháttar skattalagabrot í rekstri hreingerningarþjónustufyrirtækisins PURUS. Auk 10 mánaða skilorðsbundins fangelsisdóms hlýtur hann rúmlega 69 milljón króna sekt.

DV greindi frá dómi Héraðsdóms Reykjaness í apríl í fyrra. En auk Eiríks var Gísli Rúnar Sævarsson, sakfelldur og hlaut 18 mánaða skilorðsbundinn dóm og rúmlega 69 milljón króna sekt.

Félagið PURUS er nú gjaldþrota og hefur verið afskráð. Voru stjórnendur fyrirtækisins sakfelldir fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattskýrslum fyrir rúmlega eins árs tímabil frá vori 2019 fram á haust 2020 og ekki greitt virðisaukaskatt fyrir rétt rúmlega 40 milljónir króna. Einnig fyrir að hafa ekki staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda fyrir rúmlega 28 milljónir.

Sjá einnig:

Risasekt á Gísla og Eirík fyrir skattsvik í rekstri hreingerningarþjónustufyrirtækis

Mál Eiríks fór fyrir Landsrétt sem staðfesti að mestu dóminn en hækkaði örlítið sektina. Verði sektin ekki greidd til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins bætist 360 daga fangelsisvist við hann.

Þá var Eiríki gert að greiða allan áfrýjunarkostnað málsins, það er tæplega 2 milljónir króna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika
Fréttir
Í gær

Láta Snorra heyra það vegna færslu um tjáningarfrelsi og ESB – „Ef svo er, þá er þessi málflutningur þinn alveg óboðlegur“

Láta Snorra heyra það vegna færslu um tjáningarfrelsi og ESB – „Ef svo er, þá er þessi málflutningur þinn alveg óboðlegur“
Fréttir
Í gær

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“