fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
Fréttir

Ísland er 15. besta land í heimi – Heilsan góð en dýralífið fábreytt

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 22. maí 2026 11:30

Ísland......ekki alveg best í heimi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísland er í 15. sæti yfir bestu lönd í heiminum á nýjum lista U.S. News & World Report. Heilbrigðismálin lyfta Íslandi upp en lítill efnahagsvöxtur og skortur á skóglendi er meðal þess sem dregur landið niður.

Listinn, sem er gefinn út af bandaríska fjölmiðlinum, tekur á ýmsum þáttum og fær hvert land stig fyrir ýmsar breytur. Meðal annars eru þetta efnahagsmál, ferðamennska, umhverfismál, heilsa, innviðir, náttúra, stjórnsýsla og tækifæri þegnanna.

Ísland er í 15. sæti á heildarlistanum og skorar 71,3 stig. En landið skorar mjög mishátt í hverjum flokki.

Langlífi mikið en litlar erlendar fjárfestingar

Ísland er í efsta sæti í bæði heilbrigðismálum og tækifærum þegnanna. Tekið er fram að Ísland standi sig vel í greiningu sjúkdóma, að takast á við farsóttir og séu með góða heilsugæslu. Hér séu allir sjúkratryggðir, bólusetningarhlutfall sé hátt, langlífi mikið og barnadauði fátíður. Það eina sem vantar séu fleiri pláss á sjúkrahúsum.

Þegar kemur að tækifærum þá er menntunarstigið hátt og laun nokkuð há. Hér sé gott að stofna fyrirtæki og aðhald hins opinbera sé nokkuð réttlátt. Á móti kemur að erlendar fjárfestingar eru ekki mjög miklar sem og aðgengi að lánsfé. Þá sé atvinnuleysi nokkuð og skattlagning í hærri kantinum.

Lítill efnahagsvöxtur og fábreytt náttúra

Versti flokkur Íslands er efnahagurinn. Er Ísland aðeins í 34. sæti þar. Þó að landsframleiðsla sé góð og nýsköpun þó nokkur þá er markaðurinn mjög lítill og efnahagslegur vöxtur sömuleiðis.

Einnig dregur náttúran og umhverfið okkur niður. Vatnið og loftið er vissulega hreint og nóg af athyglisverðum náttúrufyrirbærum til að skoða. En skortur á skóglendi vegur þungt sem og fábreytt dýralíf, skortur á vernduðum svæðum og töluvert mikil losun gróðurhúsalofttegunda.

Þegar kemur að innviðum er nefnt að aðgengi að hreinu drykkjarvatni sé mikið hér á landi, góðar og traustar nettengingar, góðar almenningssamgöngur og nokkuð gott vegakerfi. Hins vegar sé nokkuð mikil hætta á náttúruhamförum sem geti ógnað innviðum, einkum jarðskjálftum.

Hamingjusöm en kvíðin þjóð

Í flokknum stjórnsýsla er nefnt að íslenska vegabréfið veiti borgurum mikið ferðafrelsi, hér sé lítið um glæpi og spillingu og bæði stjórnsýslan og stjórnmálin virki almennt vel. Hið opinbera hafi góðar tekjur af skattheimtu en þó sé skuldsetningin almennt frekar há.

Þá er nefnt að Íslendingar séu mjög hamingjusamir, traust sé mikið í samfélaginu, tjáningarfrelsi ríki, kosningaþátttaka sé mikil og samfélagið sé almennt frjálslynt og aðhyllist lýðræði. Íslendingar séu hins vegar nokkuð kvíðin þjóð.

Evrópa trónir á toppnum

Sviss er besta land í heimi samkvæmt listanum. Þar á eftir koma Danmörk, Svíþjóð, Þýskaland, Holland, Noregur, Bretland, Finnland, Lúxemborg, Austurríki, Belgía, Frakkland, Írland og Ástralía. Loks kemur Ísland í fimmtánda sæti.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika
Fréttir
Í gær

Láta Snorra heyra það vegna færslu um tjáningarfrelsi og ESB – „Ef svo er, þá er þessi málflutningur þinn alveg óboðlegur“

Láta Snorra heyra það vegna færslu um tjáningarfrelsi og ESB – „Ef svo er, þá er þessi málflutningur þinn alveg óboðlegur“
Fréttir
Í gær

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“

MAST haldlagði dúfu í vörslu Árna Stefáns sem er hneykslaður – „Er lögreglan að gera sig að athlægi?“