fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Skipulagsbreytingar formanns Miðflokksins og gervigreindar – „Alveg hissa að formaðurinn hafi ekki búið til fleiri bílastæði“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 6. maí 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður og þingmaður Miðflokksins, virðist hafa tekið gervigreindina föstum tökum þegar kemur að skipulagsmálum á höfuðborgarsvæðinu og víðar.

Sigmundur hefur birt nokkrar færslur á samfélagsmiðlum þar sem hann endurbyggir með gervigreind göturnar Sunnusmára í Kópavogi, Skipagötu á Akureyri, Bjarkarholt í Mosfellsbæ og bæina Hól og London í Vestmannaeyjum.

Sitt sýnist hverjum um gervigreindarbrölt Sigmundar og hafa skapast líflegar umræður við færslur hans.

Gámur með verkfærum hverfur

Sigmundur lét fyrst til sín taka í gervigreindarskipulagsmálum með færslu á sjálfan verkalýðsdaginn 1. maí, þar sem hann birti fyrir mynd af Hóli og London í Eyjum og eftir-gervigreindarmynd:

„Í Vestmannaeyjum eru mikil tækifæri til að fegra bæinn. Þegar ég var að skoða þetta á sínum tíma kom í ljós að Vestm.eyjar eiga eina best varðveittu byggð á Íslandi. Þrátt fyrir eldgos! Hún þarf bara að fá að njóta sín.“ 

Mynd: Facebook/Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Fyrstur til að skrifa athugasemd var Eyjamaðurinn Guðlaugur Friðþórsson, sem varð landsþekktur árið 1984, 22 ára gamall, fyrir að hafa synt sex kílómetra í land og gengið síðan berfættur yfir hraun til byggða í Eyjum eftir að Hellisey VE-503 sökk austur af Heimaey.

„Þætti vænt um að vita hvað þú gerðir við gáminn, ég var með verkfæri í honum.“ 

Sigmundur svarar honum glettinn: „Heill og sæll þjóðhetja. Engar áhyggjur, honum var komið fyrir á góðum stað. Ég hendi aldrei neinu og allra síst annarra manna verkfærum.“

Mynd: Facebook/Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (Mynd gerð með gervigreind).

„Ertu að dunda þér við þetta þegar þú skrópar í vinnuna á Alþingi? Sem er alltaf, nema í málþófi til að verja elítuna“, skrifar karlmaður.

Bjarnheiður Jóhannsdóttir listakona skorar á Sigmund að snúa sér alfarið að byggingavernd, „þarna liggja þínir hæfileikar og bæði þekking þín á opinberri stjórnsýslu og þitt fjármagn mundi nýtast vel í verkefnið. Það gæti auk þess verið arðbært, ef vel væri á haldið. Ekki síst mundi orðstír þinn lifa ef þú tækir þér þetta hlutverk.“  Svala Jónsdóttir er henni sammála: „Orku þinni væri betur varið í endurnýjun húsa, heldur en að mæta illa á þingfundi og hnýta í fólk af erlendum uppruna.“

Karlmanni líst vel á að fá Sigmund sem þingmann eyjamanna: „Sammála. Veit um hús til sölu, vantar almennilegan þingmann fyrir okkur í Eyjum.“

Fegraði kosningaskrifstofu Miðflokksins í stíl Frakka – Karlmaður áttaði sig ekki á að um gervigreindarmynd væri að ræða

Degi síðar var Sigmundur kominn á meginlandið og í Kópavog í kosningaskrifstofu Miðflokksins í Sunnusmára 4, fyrir ofan Smáralind. Þar þótti honum greinilega tilefni til fegrunar að hætti Frakka.

„Ein nýjasta gata Kópavogs. Hér er kosningaskrifstofa Miðflokksins (Sunnusmári 4, rétt við Smáralind). Gott afdrep á besta stað. En það væri ekki verra ef gatan liti út eins og á seinni myndinni. Af hverju ekki?Ég veit að þetta er í Parísarstíl (og við gætum gert þetta með  íslenskri steinsteypuklassík). En þeir eru enn að gera þetta í París og…Af hverju ekki? Nýja borgin á Íslandi:Kópavogur, París norðursins.“ 

Mynd: Facebook/Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Enn fleiri athugasemdir voru skrifaðar við þessa færslu en þá í Eyjum:

„Ekkert að því að byggja falleg hús. En þú færð hvorki vinnuafl né fjármagn til byggingar hvað þá kaupendur ef við fylgjum þinni stefnu í öðrum málum. Af hverju læturðu ekki einhvern skipa þig über-borgararkitekt og slappar af og hættir að níðast á minnimáttar?“

„Þetta er alveg skelfilegur arkitektúr og eiginlega móðgun við hugtakið „arkitektúr“ að kalla þessar ömurlegu byggingar slíku heiti! Það er alveg makalaust með fjölda arkitekta í landinu að þeir virðist bara kunna eina tegund bygginga – ferkantaðar, með ferkantaða glugga, sálarlausar, skortur á öllu hugmyndaflugi og fegurðarskyni, gleðilaust!! Svart, grátt eða hvítt, tilbreytingin felst í dökkbrúnum lit!“

Mynd: Facebook/Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (Mynd gerð með gervigreind).

Karlmaður einn virtist ekki hafa áttað sig á að um gervigreind væri að ræða. „Sem sagt fake mynd hjá fake stjórnmálamanni? Hefur þú þetta staðfest af Sigmundi sjálfum? Er þetta rétt Sigmundur Davíð að þetta sé AI mynd án þess að þú nefnir það?“

Kona svaraði manninum: „Þannig að þú hélst á einhverjum tímapunkti að Sigmundur hefði smellt af mynd, brotið svo niður þessar nútimabyggingar og byggt nýjar í Parísarstíl og tekið nýja mynd. Ef ekki, þá átta ég mig ekki á hvað vandamálið er, sjá allir að þetta er tölvugerð mynd og því kjánalegt að tilkynna það sérstaklega. “

Karlmaður segir þetta skelfilega þétt og ekki barnvænt, sem Sigmundur svarar með: „Það er rétt. En ef þú vilt byggja þétt, gerðu það rétt.“

Meðal annarra athugasemda má nefna:

„Flytja bara skrifstofuna til Parísar. Málið leyst.“ 

„Alveg hissa að formaðurinn hafi ekki búið til fleiri bílastæði…“ 

Breytti byggðakjarna í Bjarkarholti

Sigmundur lét ekki tölvuna hvílast og næst var það Mosfellsbær, nánar tiltekið Bjarkarholt þar sem meðal annars má finna verslun Bónus.

„Ég held áfram og get ekki annað. Það sem áður tók þrjár vikur að teikna með þrívíddarforriti tekur nú enga stund. Í dag lítum við á Mosfellsbæ eins og hann blasti við mér eftir góðan hamborgara (mynd fylgir ekki) og eins og hann gæti verið. Byggð á höfuðborgarsvæðinu er nokkuð dreifð. Fremur en að þrengja að umferð og troða nýbyggingum þar sem þær eiga ekki heima má reisa nýja byggðarkjarna eins og verið er að gera í Mosfellsbæ. Slíkir byggðarkjarnar hafa þó mun meira aðdráttarafl og eldast betur ef þeir eru sérstakir og sígildir. Slík byggð eykur líka verðmæti annars konar (nýtískulegra) bygginga í hvaða byggð sem hefur sterkan kjarna. Ef fjölbýlishúsin á fyrri myndinni fengju t.d. sígildan bæjarkjarna við hliðina á sér myndi verðmæti þeirra aukast og varðveitast. Ólíkar byggingar gegna ólíkum hlutverkum en verðmæti heildarinnar eykst ef hverfi skipta með sér verkum.“ 

Mynd: Facebook/Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Eins og áður sýndist sitt hverjum:

„Ég skil ekki alveg hvernig svona pæling byrjar hjá manni sem í flestum tilfellum vill ekki neitt með tengingu við Evrópu hafa að gera, en er alveg sammála við gætum margt af þeim lært í svo mörgum málum“ , spyr Hannes Friðriksson.

„Bæði mjög fallegt og tákn sitthvorra tíma. Hatar þú allt eða bara að reyna að æra óstöðuga í von um fleiri atkvæði fyrir Hatursfulla Hægrið?“ spyr Þór Jóhannesson jógakennari.

„Umhverfisklúður grefur undan geðheilsu fólks, þetta er mjög alvarlegt mál“, segir listakonan Lína Rut Wilberg.

Mynd: Facebook/Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (Mynd gerð með gervigreind).

Hrósaði Hótel Akureyri án aðstoðar gervigreindar

Inn á milli skipulagsbreytinga með gervigreind tók Sigmundur sér tíma til að hrósa uppbyggingu á Hótel Akureyri sem hann sagði til fyrirmyndar innanhúss og utan. Nýtti hann ekki tækifærið til að bæta neitt með gervigreind og rétt er að taka fram að gervigreind sá ekki um endurbætur hótelsins.

Akureyringum fæstum skemmt yfirskipulagsbreytingum í Skipagötu

Greinilega fannst Sigmundi þó í kvöldgöngu Skipagatan á Akureyri eitthvað óspennandi.

„Ég fór í kvöldgöngu á Akureyri i gærkvöldi og ég hugsaði: „Af hverju ekki?““ 

Mynd: Facebook/Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Leiðsögumanninum Árna Tryggvasyni fannst þetta sprenghlægilegt: „Mér finnst mótsögnin í þessum málflutningi þínum vera allt að því sprenghlægileg. Eina stundina hatastu út í Evrópu en þá næstu viltu að allt líti út eins og gömlu Evrópu? Fyrir nokkrum árum hélstu því fram að við ættum að byggja í einhverjum „sér íslenskum stíl“ og vísaðir þá í hús sem Guðjón Samúelsson hafði teiknað. Þekking þín er ekki meiri en sú að þetta kallast ítalskur endurreisnarstíll. Ekkert íslenskt við þetta.“

„Það er ljóst að Sigmundur er með blauta drauma um evrópskar stórborgir, kannski að hann hafi leynda drauma um að búa í einni slíkri, til dæmis Brussel þar sem erkióvinurinn ESB er til húsa. Hver veit hvað býr þessum kolli….“, segir karlmaður einn. Kona nokkur vill hins vegar lítið spá í að hafa Sigmund í sínum kolli: „Ég hef ákveðið að SDG fær ekki lengur ókeypis húsnæði í höfðinu á mér og heldur ekki Donald Trump og formaður Sjálfstæðisflokksins. Ég hef ekkert pláss fyrir þau þar.“

Mynd: Facebook/Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (Mynd gerð með gervigreind).

Einhverjum líst þó vel á:

„Það væri verulega gaman að sjá Skipagötuna svona.“

„Sami himinn á báðum myndum en Skipagatan myndi jú alveg þola ögn manneskjulegri hús og fágaðri götumynd.“ 

„Myndi kjósa þig sem húsameistara ríkisins. Við höfum alltaf verið sálufélagar í húsbyggingastíl.“ 

Ragnar Egilsson vill að Sigmundur hætti þessum leik á launum almennings: „Heyrðu ég segi bara að þú lærir einhverja iðn og byrjir að leggja hellur. Mikið betra en að sitja á rassinum í nefndum eða leika þér á ChatGPT fyrir almannafé. Hellulagning er fínasta líkamsrækt, ég gerði það í 1 ár og það lak af mér spikið eins og lýsi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Mikill meirihluti Bandaríkjamanna telur Trump andlega óhæfan til að gegna embætti

Mikill meirihluti Bandaríkjamanna telur Trump andlega óhæfan til að gegna embætti
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Odee storkar bannfýsn skólans síns – Elsa úr Frozen, Rómeó og Júlía, Moby Dick og David Bowie á bannlista

Odee storkar bannfýsn skólans síns – Elsa úr Frozen, Rómeó og Júlía, Moby Dick og David Bowie á bannlista
Fréttir
Í gær

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“
Fréttir
Í gær

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg