fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Yoko Ono lét stöðva framleiðslu John Lennon bjórs

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 6. maí 2026 09:30

Yoko Ono var ekki sátt við franska brugghúsið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yoko Ono, listakona og ekkja Bítilsins John Lennon, hefur krafist þess að brugghús í Frakklandi hætti að framleiða bjór þar sem vísað er í hann. Bjórinn hefur verið mjög vinsæll og nafnið vakið mikla athygli.

Greint er frá málinu í miðlinum The Local í Frakklandi.

Bjórinn sem um ræðir kallast John Lemon, framleiddur af brugghúsinu Brasserie de l’Imprimerie á Bretónsskaga. Eins og nafnið gefur til kynna eru notaðar sítrónur við framleiðslu bjórsins.

Í marsmánuði barst Aurelien Picard, eiganda brugghússins, krafa frá lögmönnum Yoko Ono um að hætt yrði að framleiða bjór með nafni John Lennon.

Var frönsku bruggurunum hótað á bilinu 150 til 1000 evrum í sektir á dag. Það er allt að 145 þúsund krónum.

„Þau kröfðust þess að við innkölluðum allar vörurnar og hættum að nota vörumerkið,“ segir Picard.

Eftir samninga við lögmenn var fallist á það að brugghúsið mætti selja lagerinn sinn, það er þær 5 þúsund flöskur sem eftir voru, en hætta framleiðslu á bjórnum.

Er brugghúsið nún að leita að öðru vörumerki sem getur slegið í gegn eins og John Lemon.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni
Fréttir
Í gær

Frönskum kjarnorkuvopnum gæti verið komið fyrir í Svíþjóð

Frönskum kjarnorkuvopnum gæti verið komið fyrir í Svíþjóð
Fréttir
Í gær

Finnst lítið til vitrunar Hlédísar koma – „Þessi vitrun er bara fáránleg, miðað við gögnin“

Finnst lítið til vitrunar Hlédísar koma – „Þessi vitrun er bara fáránleg, miðað við gögnin“
Fréttir
Í gær

Þarf að sæta gæsluvarðhaldi vegna gruns um ævintýralegan fjölda brota eftir tvö ár af nær óslitinni brotahrinu

Þarf að sæta gæsluvarðhaldi vegna gruns um ævintýralegan fjölda brota eftir tvö ár af nær óslitinni brotahrinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sendu Kjartani „risa ljós“

Sendu Kjartani „risa ljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Halla á fund páfa

Halla á fund páfa