fbpx
Sunnudagur 17.maí 2026
433Sport

Teikna upp dökka mynd af fjárhagsstöðu Chelsea eftir hörmulegt gengi

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 6. maí 2026 08:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Útlitið er dökkt hjá Chelsea eftir hörmulegt gengi undanfarið og er allt útlit fyrir að liðið nái ekki Meistaradeildarsæti, sem gæti haft þung áhrif á efnahaginn.

Chelsea hefur tapað sex leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni og aðeins skorað eitt mark. Síðasta tapið kom gegn fallbaráttuliði Nottingham Forest í fyrradag, 1-3 á heimavelli.

Liam Rosenior var rekinn úr starfi stjóra Chelsea eftir aðeins nokkra mánuði á dögunum og aðstoðarþjálfarinn Calum McFarlane tók við til bráðabirgða. Það er því ekki ljóst hver stýrir liðinu á næstu leiktíð.

BBC fjallar um stöðu Chelsea, til að mynda fjárhag félagsins. Þar kemur fram að félagið hafi tapað 262 milljónum punda fyrir skatt á síðasta ári, þrátt fyrir að vera með um 490 milljónir í tekjur.

Með því að missa af Meistaradeildarsæti gæti félagið misst af yfir 100 milljónum punda í tekjur. Það er því ekki til að bæta stöðuna.

Eignarhald Chelsea, með Tott Boehly í fararbroddi, hefur mikið verið gagnrýnt undanfarið, aðallega af stuðningsmönnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Carrick mættur á æfingasvæði United

Umboðsmaður Carrick mættur á æfingasvæði United
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar