fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
433Sport

Steig af stærsta sviðinu og tók U-beygju í lífinu – „Það átti ekki endilega neinn að sjá þessar myndir“

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 6. maí 2026 08:30

Alfie Whiteman.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alfie Whiteman, fyrrum markvörður Tottenham, hefur vakið mikla athygli eftir að hann hætti óvænt í atvinnumennsku aðeins 26 ára gamall og sneri sér að list og kvikmyndagerð.

Whiteman var á bekknum þegar Tottenham vann Evrópudeildina síðasta vor eftir úrslitaleik gegn Manchester United.

Hann ákvað hins vegar að leggja hanskana á hilluna eftir tímabilið og einbeita sér að skapandi störfum.

„Ég vissi snemma að ég vildi ekki vera í fótbolta að eilífu,“ segir hann, en hann hefur nú opnað ljósmyndasýningu í Degerfors í Svíþjóð, hvar hann lék á láni frá Tottenham tímabilin 2021 og 2022.

Á sýningunni sýnir meðal annars sjálfsmyndir teknar í einangrun vegna kórónuveirunnar við stöðuvatn í Svíþjóð og lýsir lífi sínu utan vallar, en hann hélt dagbók á þessum tíma sem hann notast einnig við.

„Það átti ekki endilega neinn að sjá þessar myndir þegar ég tók þær, en þær endurspegla lífið sem ég lifði þá,“ segir Whiteman.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Carrick mættur á æfingasvæði United

Umboðsmaður Carrick mættur á æfingasvæði United
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar