fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra og segir af sér þingmennsku

Ritstjórn DV
Mánudaginn 20. apríl 2026 15:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi ráðherra, hefur verið skipuð sendiherra og segir því af sér þingstörfum. Frá þessu greinir hún á Facebook. Hún mun nú formlega tilkynna forseta Alþingis um afsögn sína og hefur þegar upplýst þingflokk sinn.

„Um nokkurt skeið hef ég í málflutningi mínum lagt áherslu á að komnir séu upp tímar í alþjóðamálum sem reyna munu öðruvísi og meira á Ísland en verið hefur undanfarna áratugi, jafnvel frá því við tókum öll mál okkar í eigin hendur árið 1944. Þau viðfangsefni ná í mínum huga langt út fyrir persónulegan metnað stjórnmálamanna eða einstakra stjórnmálaflokka.

Undanfarin misseri hef ég hugleitt framtíðina og hvernig ég geti best gert gagn fyrir Ísland og íslenska hagsmuni. Með hliðsjón af reynslu minni, þekkingu og tengslum á sviði alþjóðamála tel ég að ég geti, við núverandi aðstæður, gert mest gagn fyrir íslensku þjóðina með starfi á því sviði.“

Þórdís segir sendiherra gegna mikilvægu hlutverki fyrir Ísland. Því hafi hún kynnst sem ráðherra og þingmaður í utanríkismálanefnd.

„Ég mun því nálgast þetta verkefni af þeirri auðmýkt sem þarf til þess að læra að sinna nýju hlutverki en um leið sjálfstrausti í þeirri viðleitni að leyfa getu minni, reynslu og þekkingu að koma að gagni.“

Hún segist þakklát vinum og félögum í Sjálfstæðisflokknum fyrir farsælt samstarf á margvíslegum vettvangi undanfarna tvo áratugi.

„Fyrir það traust og umboð sem ég hef hlotið á þeim vettvangi þakka ég af öllu hjarta.“

Skipan Þórdísar í embætti er frá 1. ágúst næstkomandi. Vísir kveðst hafa heimildir fyrir því að Þórdís verði sendiherra í London, en mun Þórdís hafa beðið þingflokk sinn um algjöran trúnað um þetta mál en varaþingmaður flokksins hafi óvart leyst frá skjóðunni í athugasemd undir færslu Þórdísar þar sem varaþingmaðurinn sagðist spenntur að heimsækja Þórdísi til London. Athugasemdinni var síðar breytt en Vísir leitaði til utanríkisráðuneytisins sem vildi ekkert gefa upp um hvar Þórdís verður skipuð þar sem enn sé beðið eftir staðfestingu frá stjórnvöldum í gistiríkinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda
Fréttir
Í gær

Þórdís Lóa stefnir norður í land

Þórdís Lóa stefnir norður í land
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis