fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Albani ákærður fyrir fíkniefnabrot og peningaþvætti á Akureyri

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 20. apríl 2026 13:30

Akureyri. Mynd/Pixabay

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Albanskur maður, sem handtekinn var á Norðurgötu á Akureyri þann 10. mars, en á lögheimili í Albaníu, hefur verið ákærður fyrir fíkniefnalagabrot og peningaþvætti.

Maðurinn er sakaður um að hafa haft í fórum sínum rúmlega 40 grömm af kókaíni og rúmlega hálft kíló af maríhúana. Hann er jafnframt sakaður um að hafa aflað sér ávinnings með sölu á fíkniefnum eða öðrum refsiverðum brotum, að fjárhæð 120 þúsund krónur sem fundust í fórum hans.

Ekki hefur tekist að birta manninum ákæru og er hún því birt í Lögbirtingablaðinu ásamt fyrirkalli þar sem ákærði er hvattur til að mæta fyrir dóm þegar málið verður þingfest við Héraðsdóm Norðurlands eystra þann 27. maí næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda
Fréttir
Í gær

Þórdís Lóa stefnir norður í land

Þórdís Lóa stefnir norður í land
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis