
Tveir aðkomumenn á Kópaskeri, sem voru þar vegna vinnu og bjuggu á sama gistiheimilinu, lentu í harkalegum átökum hvor við annan haustið 2023.
Annar maðurinn var sakaður um að hafa ráðist á hinn og kýlt hann ítrekað í andlitið með þeim afleiðingum að „hann hlaut brot á augntóft vinstra megin, 5-6 mm. stallamyndun á botninum á augntóftinni, brotaflaski gekk niður í kinnholuna og lítilega upp í augnbotninn hinumegin, augnvöðvi var bólginn og grunur um blæðingu í vöðvanum, loft var miðlægt neðan við augntóftina og upp frá kinnholu, sem var talsvert blóðfyllt. Miklar bólgur voru í kringum augntóftina. Hann var með sprungna neðri vör vinstra megin og það brotnaði lítilega upp úr einnitönn í honum,“ segir í ákæru.
Árásarþolinn brást við með því að fara inn í eldhús gistiheimilisins og ná sér þar í flökunarhníf. Hann lagði hnífinn að hálsi mannsins sem hafði kýlt hann en við það fékk sá grunnar rispur á hálssvæðið.
Mennirnir voru báðir fundnir sekir. Sá sem kýldi hinn var dæmdur þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi en sá sem ógnaði honum með hnífnum var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
Báðir voru dæmdir til að greiða um 1,6 milljónir hvor í málskostnað.