

Lögregla í sýslunni Tulare í Kaliforníufylki í Bandaríkjunum keyrði viljandi niður mann á fimmtudag og drap hann. Maðurinn hafði skotið lögreglumann til bana.
Atvikið átti sér stað um klukkan 10:20 síðastliðinn fimmtudag, þann 9. apríl, í Tulare sýslu, mitt á milli borganna Fresno og Bakersfield um miðbik fylkisins.
Nokkrir lögreglumenn mættu að húsnæði hins 59 ára David Morales til þess að afhenda honum tilkynningu um útburð. En Morales hafði ekki greitt húsaleigu sína í 35 daga.
Eins og segir í tilkynningu lögreglunnar á samfélagsmiðlinum Facebook vissi Morales af því að þetta stæði til og beið eftir lögreglumönnunum. Var hann klæddur í felulitabúning og vopnaður löngum riffli.
Þegar lögreglan kom á staðinn byrjaði hann samstundis að skjóta og hæfði einn þeirra, hinn 35 ára Randy Hoppert. Hoppert lést af sárum sínum á spítala.
Eftir skothríðina stökk Morales út um glugga á heimili sínu og tók á rás. Um tíma faldi hann sig í runna og það virtist ætla að takast, því að lögreglumennirnir fundu hann ekki. En þegar þeir komu auga á hann hófst skotbardagi. Skiptust Morales og lögreglumennirnir á nokkrum skotum.
Umsátur stóð yfir í marga klukkutíma í götunni og alls var fjórum götum lokað. Kallaði lögreglan til sérsveit sem kom á brynvörðum bílum. Hóf Morales skothríð á þessa bíla. Síðdegis tók lögreglan ákvörðun um að keyra hann niður.
„Við keyrðum hann viljandi niður,“ sagði Mike Boudreaux, lögreglustjóri, á blaðamannafundi. „Ekki skjóta á löggur. Ef þú skýtur á löggur þá keyrum við þig niður.“

Eins og kemur fram í frétt tímaritsins People um málið þá liggur ekki fyrir hvers vegna Morales brást svona við útburðinum. Hann hafði aldrei áður komist í kast við lögin. Hann átti átján skráðar byssur en riffillinn sem hann notaði í umsátrinu var óskráður.
Randy Hoppert hafði verið sex ár í lögreglunni en þar áður var hann í sjóhernum. Til stóð að flytja hann með sjúkraþyrlu á gjörgæsludeild í Fresno, sem er í um 110 kílómetra fjarlægð frá Tulare, en ástand hans var ekki talið vera nógu gott til að hann þyldi flutninginn.
„Boudreaux lögreglustjóri og við öll hérna á lögreglustöðinni í Tulare sýslu erum í áfalli og harmi slegin yfir þessum hræðilegu atburðum í dag,“ sagði í tilkynningu lögreglunnar. „Við óskum eftir að þið hafið fjölskyldu hins fallna lögreglumanns í bænum ykkar.“