fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fréttir

ICE-fulltrúinn er skyndilega orðinn milljónamæringur

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 13. janúar 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rétt tæplega 600 þúsund dollarar, um 75 milljónir króna, hafa safnast fyrir Ice-fulltrúann Jonathan Ross. Jonathan komst í heimsfréttirnar í síðustu viku þegar hann skaut hina 37 ára gömlu Renee Nicole Good til bana í Minneapolis.

Jonathan er starfsmaður Útlendinga- og tollgæslu Bandaríkjanna (ICE), en hann varð Renee, þriggja barna móður, að bana þegar hann skaut hana í höfuðið þar sem hún var í bifreið sinni. Mótmælendur höfðu safnast saman í íbúðagötu þar sem fulltrúar ICE voru að störfum.

Stofnandi söfunarinnar heitir Clyde Emmons og er hann íbúi í Michigan. Hann segir að honum hafi ofboðið þegar hann sá fréttir í fjölmiðlum um söfnun fyrir aðstandendur Renee, en alls söfnuðust ein og hálf milljón dollara í henni áður en henni var lokað.

Samkvæmt frétt NEwser heldur Emmons því fram að gjörðir Ross hafi verið „1000 prósent réttlætanlegar“ og að peningarnir væru ætlaðir honum. Upphaflegt markmið söfnunarinnar var 550 þúsund dollarar en vegna þess hversu vel hefur gengið hefur markmiðið verið hækkað í 800 þúsund dollara.

Sá sem hingað til hefur lagt fram hæsta framlagið er milljarðamæringurinn og fjárfestirinn Bill Ackman, sem gaf 10.000 dollara í söfnunina.

Í færslu á X sagði Ackman að hann hefði valið þá upphæð vegna þess að hann ætlaði að jafna hana með framlögum til söfnunar Good, en komst þá að því að henni hefði þegar verið lokað. Í umfjöllun The Daily Beast er bent á að Ackman sé harður stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Annað stórt framlag, 5.000 dollarar, var nafnlaust.

Í fréttum bandarískra fjölmiðla kemur fram að óvíst sé hvort Ross megi taka við fjármununum. Siðareglur alríkisins banna almennt ríkisstarfsmönnum að þiggja utanaðkomandi greiðslur fyrir störf sín.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Leigjendur höfðu betur í deilu sem sprottin var af þvagblettum

Leigjendur höfðu betur í deilu sem sprottin var af þvagblettum
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Eldri borgarar aldrei fleiri – Börnum fækkar hratt

Eldri borgarar aldrei fleiri – Börnum fækkar hratt
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Ófrísk kona situr uppi með háan reikning

Ófrísk kona situr uppi með háan reikning
Fréttir
Í gær

Ekkja kennara sem lést eftir hrekk kallar eftir vægð fyrir gerendurna – „Þetta er skelfilegur harmleikur“

Ekkja kennara sem lést eftir hrekk kallar eftir vægð fyrir gerendurna – „Þetta er skelfilegur harmleikur“
Fréttir
Í gær

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju