fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði og maður lenti í sjónum

Ritstjórn DV
Mánudaginn 30. júní 2025 12:01

Mynd: Landhelgisgæslan Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Vestfjörðum voru kallaðar út á tólfta tímanum í dag eftir að strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði. Skipstjóri fiskibáts sem var staddur í grenndinni hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og tilkynnti um að báturinn væri sokkinn og að einn maður væri í sjónum.

Þyrla Landhelgisgæslunnar og áhöfnin á björgunarskipinu Verði voru kallaðar út á mesta forgangi. Þá voru öll skip á svæðinu beðin um að halda á staðinn. Áhöfnin á björgunarskipinu var fyrst viðbragðsaðila á vettvang og náði manninum úr sjónum. Hann var fluttur með björgunarskipinu til Patreksfjarðar.

Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Vestfjörðum og rannsóknarnefndar samgönguslysa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Harmleikurinn í gærmorgun: Örvæntingarfullt símtal um páskana – myrti átta börn

Harmleikurinn í gærmorgun: Örvæntingarfullt símtal um páskana – myrti átta börn
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Rjúfum þögnina og útrýmum kynferðisofbeldi gegn börnum – Ég lofa

Rjúfum þögnina og útrýmum kynferðisofbeldi gegn börnum – Ég lofa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Laun formanns VR hækkuð verulega

Laun formanns VR hækkuð verulega
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ákæran gegn Eimskipi – Héraðssaksóknari telur þetta vera ástæðu þess að skipin voru send á „hættulegasta vinnustað heimsins“

Ákæran gegn Eimskipi – Héraðssaksóknari telur þetta vera ástæðu þess að skipin voru send á „hættulegasta vinnustað heimsins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga