fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Norsk knattspyrnuhetja græddi á tá og fingri þegar hann seldi íslenska ríkinu íbúð

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 4. júní 2025 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Utanríkisráðuneyti Íslands hefur keypt nýjan sendiherrabústað í Aker Brygge sem er í miðborg Oslóar í Noregi fyrir 750 milljónir króna.

Íbúðin er 363 fermetrar og seljandinn er Stefan Strandberg, fyrrum landsliðsmaður í fótbolta, sem keypti hana árið 2020 fyrir tæpar 477 milljónir króna og seldi hana nú íslenska ríkinu fyrir 750 milljónir króna eins og áður segir, eins og norski miðilinn E24 greinir frá. Strandberg vildi þó fyrst fá 816 milljónir króna þegar hann setti eignina á sölu, en lækkaði verðmiðann. 

Stefan Strandberg

Strandberg hafði átt eignina í viku þegar hann fékk tilboð upp á 566 milljónir sem hann hafnaði, en viðkomandi hækkaði boðið í 629 milljónir króna sem Strandberg hafnaði einnig. Sagðist hann í samtali við fjölmiðla á þeim tíma að hann hefði lengi leitað að íbúð, og sú á Aker Brygge tikkaði í öll boxin og hann væri hæstánægður með kaupin og ætlaði sér alls ekki að selja. 

Íbúðin var upphaflega þrjár íbúðir sem voru sameinaðar í eina áður en Strandberg varð eigandi. Fjárfestingafyrirtækið Haare keypti íbúðirnar árin 2001 og 2003 fyrir 330 milljónir samtals og gerði þær að einni.

Eins og sjá má á teikningunni af íbúðinni eru þar meðal annars tvær stórar stofur, tvö eldhús, fjögur baðherbergi, þrennar svalir, auk þess sem þrenn bílastæði fylgja. Íbúðin er einnig með einkalyftu. Nóg pláss ætti því að vera fyrir móttökur og veislur sendiherrans.

Hér má sjá eina mynd af íbúðinni.

Fyrri sendiherrabústaður í Bygdøy-hverfi í Ósló var settur á sölu í apríl og virðist enn óseldur þar sem eignin er á vefsíðum fasteignasala, sem dæmi hér. Ásett verð er rúmlega 950 milljónir króna. Húsið fór áður á sölu árið 2009 en ekki fékkst nægilega gott tilboð þá. Mun húsið krefjast töluverðs viðhalds.

RÚV greindi frá því þegar húsið fór á sölu og í svari frá utanríkisráðuneytinu sagði að á undanförnum árum hafi áhersla verið lögð á að flytja úr kostnaðarsömum og viðhaldsfrekum einbýlishúsum í minni eignir sem eru hagkvæmari í rekstri, krefjast minna viðhalds og eru með hærra öryggisstig.

Hneykslaður á kaupunum

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur er hneykslaður á kaupum íslenska ríkisins á nýja sendiráðinu og spyr hann af hverju sendiráðið þarf að vera í dýrasta hverfinu í Osló.

„FLOTT SKAL ÞAÐ VERA!

Af hverju þarf sendiráð Íslands í Noregi íbúð í dýrasta hverfi Oslóar undir sendherrann sinn, sem kostar heilar 750 milljónir?

Alltaf þessi kjánalegi flottræfilsháttur eða er þetta bara gamla minnimáttarkenndin sem hrjáð hefur litla Ísland frá lýðveldisstofnun og brýst fram með þessum hætti?“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“

Rukkaður um hálfa milljón fyrir eina nótt á sólmyrkvanum – „Þetta er rán“
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall

Foreldrar drengsins segja að vægur dómur yfir Helga Bjarti hafi verið áfall
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“

Samþykkja íbúðir við Austurvöll en ósammála um skilyrði – „Skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna