Draumar franska afreksmannsins Anthony Ammirati um að slá í gegn í stangastökkkeppni Ólympíuleikanna urðu að veruleika en þó ekki með þeim hætti sem sá franski eflaust vonaðist eftir. Hinn 21 árs gamli Ammirati, sem varð heimsmeistari ungmenna árið 2022,, var fjarri sínu besta í sjálfri keppninni og komst ekki í úrslit keppninnar eftir að hafa fellt 5,70 metra þrisvar sinnum. Best á hann 5,81 metra og því er um talsverð vonbrigði að ræða fyrir unga íþróttamanninn í ljósi þess að hæðin 5,75 hefði dugað í úrslitin.
Önnur tilraun Ammirati til að komast yfir 5,70 metranna hefur þó slegið í gegn á samfélagsmiðlum. Þar sést hvernig Ammirati flýgur yfir hæðina en á niðurleiðinni má greinilega sjá að það er getnaðarlimur hans sem fellir stöngina.
Myndskeiðið af atvikinu hefur slegið í gegn á samfélagsmiðlum og orðið fréttaefni í helstu fjölmiðlum heims. „Ef maður ætlar að slá í gegn á Ólympiuleikum þá er þetta ein leið til þess,“ sagði einn netverji og annar húmoristi bætti við: „Hann mætti með franskt baguette-brauð til leiks.“