Þetta kom fram á fréttamannafundi Zelenskky á sunnudaginn eftir þvi sem segir á heimasíðu úkraínska forsetaembættisins.
Zelensky segir að það að valda rússneska hernum tjóni á vígvellinum, einangra Rússland á pólitíska sviðinu, herða refsiaðgerðirnar gegn þeim og haldlagning á rússneskum eignum og fjármunum, geti veikt völd Pútíns heima fyrir.
„Fyrir Pútín eru peningar númer eitt. Ef þú hlustar á boðskap hans, þá snýst þetta allt um peninga. Hann ábyrgist peningana þína, meira að segja haldlagt fé í útlöndum,“ sagði Zelenskyy á fréttamannafundi.
„Ef allir haldlagðir fjármunir og peningar eru millifærðir til Úkraínu án nokkurra skilyrða, þá tel ég að það myndi veikja stöðu hann mjög mikið. Án blóðsúthellinga en þetta myndi virka mjög vel. Þá myndi hann hringja í alla, ekki bara mig, til að finna leið til út úr þessu stríði.“