fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fréttir

Albanskur rannsóknarlögreglumaður sem sótti um hæli á Íslandi er horfinn

Ritstjórn DV
Föstudaginn 19. janúar 2024 16:00

Mynd: Nútíminn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Albanskur maður um fimmtugt, Andi Begaj, sem starfaði sem rannsóknarlögreglumaður í Albaníu og rannsakaði glæpi mafíunnar í heimalandi sínu, og hefur árangurslaust sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi fyrir sig og ólögráða syni sína tvo sem voru með honum hér á landi, er horfinn.

Nútíminn greinir frá þessu. Í frétt Nútímans kemur fram að börn mannsins séu í umsjá yfirvalda hér á landi.

„Hann fylgdi tveimur sonum sínum í grunnskóla þeirra þann 4. janúar og hefur ekki sést síðan. Tveir drengir hans voru því upp á sig sjálfa komnir í rúma tvo sólarhringa þar til lögfræðingur Andi hér á landi fékk veður af þessu og gerði ráðstafanir í samstarfi við barnaverndarnefnd Reykjavíkur. Þar eru þeir nú vistaðir á meðan ekki er vitað um afdrif föður þeirra. Hann hefur því verið týndur í rúmar tvær vikur. Þetta hefur lögmaður hans staðfest,“ segir í frétt Nútímans.

Sjá einnig: Albanskur rannsóknarlögreglumaður leitar hælis hér á landi – Rannsakaði mafíuna í heimalandinu

Útlendingastofnun hafnaði umsókn Andi á grundvelli þess að Albanía teljist öruggt land. Hann kærði úrskurðinn og mál hans hefur verið til meðferðar hjá kærunefnd útlendingamála.

Andi starfaði sem rannsóknarlögreglumaður í borginni Vlore í Albaníu. Hann segir í viðtali við Útlendingastofnun, en DV hefur undir höndum afrit af endurriti viðtalsins:

„9. september 2011 var dómari sprengdur í loft upp með sprengju. 2011 var ég að vinna sem rannsóknarlögreglumaður, ég fór að rannsaka málið með dómarann, þegar að mafían fann út að ég væri að vinna í málinu. 27. janúar 2012 var sett sprengja undir bílinn minn. Á þessum tíma vissi ég ekki hver hefði gert þetta. Svo hélt áreitið áfram og svo sprakk bíllinn minn um nóttina. Svo er lögreglumaður sem vottar að þetta hafi gerst.“

Andi segir síðan að árið 2017 hafi hann verið tekinn úr rannsókninni og fluttur í tollgæslu. Áreiti mafíunnar hafi haldið áfram þar. Hann lýsir ofsóknum sem leiddu til þess að konan hans fór frá honum en hann fer nú einn með forsjá sona sinna tveggja sem voru með honum hér á landi.  Árið 2021 elti mafían eldri son mannsins en syninum tókst að komast undan, samkvæmt viðtali Andi við Útlendingastofnun.

Gögn sem DV hefur séð um málið benda eindregið til þess að bíll hans hafi sannarlega verið sprengdur í loft upp, sem og að hann hafi starfað sem rannsóknarlögreglumaður í Albaníu, m.a. vottorð frá sakóknara í Vlore.

„Mafían er sterk þarna í Albaníu og hann hefur lagt fram gögn sem sýna að hann var að rannsaka þá, bæði fréttir og þess háttar, og bíllinn hans var sannarlega sprengdur í loft upp,“ sagði lögmaður mannsins, Leifur Runólfsson, í viðtali við DV þann 14. desember. Andi lagði meðal annars lagt fram blaðagreinar þar sem sagt er frá þessum málum. Einnig liggja fyrir vottorð sem sýna að hann hefur starfað sem lögreglumaður í Albaníu.

Í grein Nútímans kemur meðal annars fram að starfssvæði albönsku mafíunnar nái yfir fjölmörg lönd og ítök hennar hafi farið vaxandi. Umsvif mafíunnar liggja i lánastarfsemi, handrukkun, mansalí, vændi, fíkniefnasölu, vopnasmygli, bílaþjófnuðum, þjófnuðum og ránum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ristaðar möndlur og jólasveinar í Bónus

Ristaðar möndlur og jólasveinar í Bónus
Fréttir
Í gær

Æsispennandi kapphlaup um að verða „Trump-hvíslari“ – Hver er með forystuna?

Æsispennandi kapphlaup um að verða „Trump-hvíslari“ – Hver er með forystuna?