fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Mannslátið á laugardagskvöld – Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir konunni

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 27. september 2023 14:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist framlengingar á gæsluvarðhaldi yfir konu, sem fædd er árið 1981, vegna láts karlmanns á sextugsaldri á laugardagskvöldið. Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir konunni rennur út í dag en krafist er áframhaldandi varðhalds á grundvelli rannsóknarhagsmuna til miðvikudagsins fjórða október.

Ævar Pálmi Pálmason yfirlögregluþjónn segir í samtali við DV að krufning hafi enn ekki skilað neinum niðurstöðum sem hann geti tjáð sig um. „Dánarorsök er enn óljós og rannsóknin í fullum gangi,“ segir Ævar. Um hvort lögregla hallist að saknæmu athæfi eða ekki segir Ævar: „Ég get ekkert tjáð mig um það.“

Hann segist fastlega reikna með því að Héraðsdómur Reykjavíkur samþykki kröfu um framlengingu gæsluvarðhalds en niðurstaða um það liggur fyrir laust fyrir kl. 16 í dag (frétt verður uppfærð).

Konan sem hér um ræðir hefur hlotið marga refsidóma fyrir fíkniefnalagabrot en ekki ofbeldisbrot eftir því sem DV er kunnugt um. Hún var handtekin á vettvangi á laugardagskvöldið, í íbúð í fjölbýlishúsi í Austurborginni. Tilkynning um málið barst lögreglu á laugardagskvöld og hélt hún þegar á staðinn og hóf þar endurlífgunartilraunir á manninum. Hann var í framhaldinu fluttur á Landspítalann, en var úrskurðaður þar látinn.

Uppfært kl. 15:20:

Krafa um framlengingu gæsluvarðhalds hefur verið samþykkt. Í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir:

„Kona um fertugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald til 4. október á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti karlmanns á sextugsaldri í íbúð fjölbýlishúss í austurborginni  um síðustu helgi.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Harmleikurinn í gærmorgun: Örvæntingarfullt símtal um páskana – myrti átta börn

Harmleikurinn í gærmorgun: Örvæntingarfullt símtal um páskana – myrti átta börn
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Rjúfum þögnina og útrýmum kynferðisofbeldi gegn börnum – Ég lofa

Rjúfum þögnina og útrýmum kynferðisofbeldi gegn börnum – Ég lofa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Laun formanns VR hækkuð verulega

Laun formanns VR hækkuð verulega
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ákæran gegn Eimskipi – Héraðssaksóknari telur þetta vera ástæðu þess að skipin voru send á „hættulegasta vinnustað heimsins“

Ákæran gegn Eimskipi – Héraðssaksóknari telur þetta vera ástæðu þess að skipin voru send á „hættulegasta vinnustað heimsins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga