fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Segir ásakanir Rússa auka líkurnar á því að þeir ætli sjálfir að nota skítasprengju

Ritstjórn DV
Mánudaginn 24. október 2022 06:56

Volodymyr Zelenskyy, Úkraínuforseti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úkraínumenn hafa alfarið vísað því á bug að þeir séu með í bígerð að nota „skítasprengju“ (e. dirty bombs) gegn innrásarliði Rússa á næstu dögum. Um er að ræða sprengjur sem innihalda geislavirk efni en Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússa, greindi frá þessum áhyggjum Rússa meðal annars í samtali við breskan kollega sinn, Ben Wallace. Volodymyr Zelensky, Úkraínuforseti, brást við ásökunum með því að segja að þær bentu til þess að Rússar væru sjálfir að undirbúa notkun á slíkum sprengjum í hernaði sínum og væru að búa sér til tylliástæðu til þess að verja gjörðir sínar.

Sagði Zelensky enn fremur að Rússar bæru ábyrgð á öllum hugsanlegum vafasömum hernaði sem hefði átt sér stað í þessu stríði.

Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússlands Mynd/Reuters

Hélt hann því fram að Rússar væru að hóta „kjarnorkuslysi“ í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu sem hertekið var af Rússum í mars á þessu ári. Þá ítekraði Zelensky ennfremur þær meintu hótanir Rússa að sprengja upp  Kakhovka vatnsaflsvirkjunina. Yrði það gert myndi áin Dnipro flæða yfir bakka sína og þar með myndi framrás Úkraínuhers stöðvast. Yrði stíflan eyðilögð myndi það þó bitna verst á almennum borgurum svæðisins.

Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna, Frakklands og Bretlands brugðust við ásökunum Rússa með sameiginlegri yfirlýsingu þar sem ásökunum var vísað á bug og að löndin myndu áfram styðja Úkraínumenn í „miskunnarlausu innrásarstríði Vladimir Pútíns“.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Sakfelldur fyrir hatursorðræðu eftir kæru frá Solaris – „Þarf að fara endurvekja þýsku sturturnar aftur á þetta helvítis pakk“

Sakfelldur fyrir hatursorðræðu eftir kæru frá Solaris – „Þarf að fara endurvekja þýsku sturturnar aftur á þetta helvítis pakk“
Fréttir
Í gær

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“